Hjá Ríkiskaupum eru í gangi útboð “14658: Endurskoðun og reikningshald – Rammas. m. örútboðum” (http://www.rikiskaup.is/utbod/14658) Viljum við hvetja félagsmenn til að kynna sér þetta útboð, þar sem að margir af okkar félagsmönnum hafa möguleika á að taka þátt í þessu útboði. Ef áhugi er fyrir þátttöku, þá mun félagið óska eftir sérstökum kynningarfundi, en til þess að af því verði er nauðsynlegt að félagsmenn láti vita sem allra fyrst með tölvupósti á [email protected], eða í síðasta lagi föstudaginn 3. apríl n.k.
Endilega kynnið ykkur útboðið, þar gætu verið möguleikar á verkefnum. Sérstaklega er bent á lið 1.2.3 á bls. 8 í útboðsgögnunum. Skv. upplýsingum frá Ríkiskaupum mun Viðurkenndum bókurum verða bætt við í Flokk A í lið 1.2.3.
Útboðsgögnin eru á www.rikiskaup.is