Hér verður sýnt hvernig er hægt að breyta persónuupplýsingum.
- Smellt er á Mínar síður til þess að kalla fram notandavalmyndina.

- Ef lásinn er opinn birtist notandavalmyndin strax.

Ef hann er lokaður þarf að logga sig inn fyrst.
- Hægt er að logga sig inn með notandanafni eða netfangi, og svo lykilorði.

- Ef notandanafnið eða lykilorðið hefur gleymst er hægt að smella á Gleymd aðgangsorð og fá send ný. Sjá leiðbeiningar hér.

- Til þess að breyta persónuupplýsingum er smellt á Breyta mínum upplýsingum

Allar fyrirspurnir sendist á vefstjori[@]fvb.is