Breytingar á ferðakostnaði og akstursgjaldi ríkisstarfsmanna
28.5.2013
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið breytingar á akstursgjaldi og á dagpeningum til greiðslu gisti- og ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands.
Ákvarðanirnar taka gildi 1. júní 2013.”
Akstursgjald ríkisstarfsmanna – auglýsing nr. 1/2013
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:
Almennt gjald
Fyrstu 10.000 km, kr. 116,00 pr. km
Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 104,50 pr. km
Umfram 20.000 km, kr. 93,00 pr. km
Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.
Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. júní 2013. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2012 dagsett 8. maí 2012.
Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.
Reykjavík, 24. maí 2013.
Ferðakostnaðarnefnd
Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands – auglýsing nr. 2/2013
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
1. Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 29.400
2. Gisting í einn sólarhring, kr. 18.600
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 10.800
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 5.400
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2013. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2012 dags. 3. október 2012.
Í gildi eru hagstæðir rammasamningar Ríkiskaupa við hótel og gistihús um gistingu og veitingar fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands. Nánari upplýsingar um samningana er að finna á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, með aðgangsupplýsingum sem stofnunin veitir, [email protected].
Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga og rammasamningar um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.
Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.
Reykjavík, 24. maí 2013
Ferðakostnaðarnefnd