Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum
um skatta og gjöld (ýmsar breytingar).
Frá Frosta Sigurjónssyni.
1. Við bætist einn nýr kafli, XII. kafli, Breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, með einni nýrri grein, 34. gr., svohljóðandi:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Heimilt er að fella niður virðisaukaskatt við innflutning á lyfjum sem gefin eru ríkinu eða stofnunum þess til nota við meðferð sjúklinga á heilbrigðisstofnunum. Skilyrði undanþágu samkvæmt ákvæði þessu eru eftirfarandi:
a. að fyrir liggi skrifleg yfirlýsing gefanda, og eftir atvikum innflytjanda, um gjöfina og af henni megi ráða að lyfin verði afhent án endurgjalds,
b. að fyrir liggi skrifleg staðfesting gjafþega á því að um gjöf sé að ræða sem afhent verði án endurgjalds og að lyfin verði notuð við meðferð sjúklinga á heilbrigðisstofnunum.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd og skilyrði undanþágunnar.
Ákvæði þetta gildir til og með 31. desember 2018.
2. Við 34. gr. (er verði 35. gr.) bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvæði 34. gr. öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Með lyfjum í skilningi ákvæðisins er átt við lyf sem falla undir skilgreiningu 2. tölul. 1. mgr. 5. gr. lyfjalaga, nr. 93/1994. Með heilbrigðisstofnun í skilningi ákvæðisins er átt við heilbrigðisstofnun samkvæmt skilgreiningu 1. tölul. 4. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu.