Á síðasta aðalfundi var samþykkt að setja nefnd á laggirnar, sem gengið hefur undir nafninu “laganefndin” og var henni ætlað að fara yfir samþykktir félagsins. Nefndin hefur verið að störfum síðustu misserin. Með nefndinni hafa unnið stjórnarmenn FVB og síðast en ekki síst, Guðmundur B. Ólafsson hrl. lögmaður VR, en Gunnar Pálsson formaður VR bauð formanni FVB aðgang að Guðmundi lögmanni, félaginu að kostnaðarlausu og kunnum við þeim þakkir fyrir.
Hér er að finna þær breytingar sem verða lagðar fyrir á aðalfundinum.