Breytingum á formi VSK-skýrslna frestað28.11.2018
Ríkisskattstjóri vill vekja athygli á því að fyrirhuguðum breytingum á virðisaukaskattsskýrslum frá og með 1. janúar 2019 mun verða frestað.
Fyrirhugað var að auka sundurliðun upplýsinga umtalsvert og hafði bæði endurskoðendum og bókurum verið sagt frá þessum fyrirætlunum. Af ýmsum orsökum frestast þessi áform þar til síðar.