Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa setningu laga sem kveði á um að bönkum og fjármálastofnunum á Íslandi verði skylt að láta skattyfirvöldum í té upplýsingar um fjármagnseign og fjármagnstekjur skattgreiðenda. Frumvarp þess efnis verði lagt fram á þessu löggjafarþingi með það að markmiði að lög þessa efnis geti tekið gildi 1. maí 2007 […]
Category: Félagsfréttir
RSK – Frumvarp til laga um breytingu á lögum um álbræðslu á Grundartanga
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 62/1997, um heimild til samninga um álbræðslu á Grundartanga, með síðari breytingum . Sjá frumvarp
RSK – Frumvarp til laga – endurgr.v.kvikmyndargerðar
RSK – Frumvarp til laga um breytingu á endurgreiðslum Iðnaðarráðuneytisins vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, lög nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, með síðari breytingum. Sjá frumvarp
EHI – Ársreikningalögin nýlegar breytingar
Þann 1.nóv mun EHI í samstarfi við menntunarnefnd FLE bjóða upp á endurmenntun þar sem farið verður yfir nýlegar breytingar á lögum um ársreikninga, meðal annars ákvæði um meðferð fjármálagerninga og gerð samstæðureikningsskila. Ætlað löggiltum endurskoðendum og öðrum þeim sem vinna við gerð ársreikninga. Skráning á heimasiðu Endurmenntunar Háskola Íslands www.endurmenntun.hi.is
RSK – Nýr tvísköttunarsamningur við Bandaríkin
Meðfylgjandi er nýr tvísköttunarsamningur við Bandaríkin. Samningur
RSK-bref v. Gjald í framkv.sjóð aldraðra
Þingmál: Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra gjaldárið 2007 verður 6 314 kr. Sjá tilkynningu
Aðalfundur 10.nóvember – undirbúningur
Viljum við benda félagsmönnum okkar að íhuga hvort þeir telji ástæðu til breytinga á samþykktum félagsins, en eins og segir í 26.gr samþykkta félagsins þarf að geta þeirra í fundarboði sem þarf að senda út skv. 15.gr. með 2 vikna fyrirvara. Einnig viljum við hvetja félagsmenn til að íhuga framboð til setu í stjórn eða […]
Skoðanakönnun – v. fyrirlestra 10. nóvember !
Beiðni hefur borist frá endurmenntunarnefndinni um að setja upp nýja spurningu á heimsíðunni okkar, og hefur það verið gert: sjá ! Hvaða bókhaldskerfi vinnur þú með?. Svörin á að nota til undirbúnings fyrir efni um fyrirlestra sama dag og aðalfundinn verður. Hugmyndir nefndarmanna eru spennandi og bíðum við hin spennt eftir niðurstöðu, en til þess […]
Frétt – v. fundarins s.l. föstudag !
Fundurinn sl. föstudag gekk mjög vel og mættu tæplega 60 félagsmenn. Gestir voru Jón Heiðar Pálsson frá TMS Maritec sem kynnti fyrirtækið og nýjungar í bókhaldshugbúnaði frá þeim. Meðal annars betri tengingar Microsoft Dynamics Nav við Office hugbúnaðinn en áður hefur verið, en það eykur upplýsingaflæði og skapar þar með betra vinnuumhverfi og streymi upplýsinga […]
Aðalfundur Félags viðurkenndra bókara
Aðalfundur Félags viðurkenndra bókara verður haldinn 10. nóvember 2006. Nánari dagskrá frá endurmenntunarnefnd og stjórn auglýst síðar! Stjórnin