Search
Close this search box.

Category: Félagsfréttir

Skoðanakönnun – v. fyrirlestra 10. nóvember !

Beiðni hefur borist frá endurmenntunarnefndinni um að setja upp nýja spurningu á heimsíðunni okkar, og hefur það verið gert: sjá ! Hvaða bókhaldskerfi vinnur þú með?.  Svörin á að nota til undirbúnings fyrir efni um fyrirlestra sama dag og aðalfundinn verður.  Hugmyndir nefndarmanna eru spennandi og bíðum við hin spennt eftir niðurstöðu, en til þess […]

Frétt – v. fundarins s.l. föstudag !

Fundurinn sl. föstudag gekk mjög vel og mættu tæplega 60 félagsmenn. Gestir voru  Jón Heiðar Pálsson frá TMS Maritec sem kynnti fyrirtækið og nýjungar í bókhaldshugbúnaði frá þeim. Meðal annars betri tengingar Microsoft Dynamics Nav við Office hugbúnaðinn en áður hefur verið, en það eykur upplýsingaflæði og skapar þar með betra vinnuumhverfi og streymi upplýsinga […]

RSK – erindi v. vottorð

Útbúin hafa verið ný eyðublöð vegna umsókna um vottorð. Þau eru á íslensku og ensku og númer þeirra er rsk. 14.10 (íslenska) og 14.11 (enska). Hægt er að finna þau á rsk.is annars vegar undir "Eyðublöð" og hins vegar "International" Þá eru þau á pappír í afgreiðslunni.  

Reikningsskiladagur FLE 22. sept.

Reikningsskiladagur FLE (Félag löggiltra endurskoðenda) verður haldinn föstudaginn 22. september nk. á Grand Hótel Reykjavík. Ráðstefnan er "opin" þeim sem áhuga hafa á að sækja hana. Skráning er hafin hér á skrifstofu FLE tölvupóstfang [email protected] sími 568 8118 eða fax 568 8139 Tilkynna þarf: Nafn þátttakanda, síma, starfsstofu, heimilisfang og kennitölu greiðanda. Dagskrá  

Félagsfundur 15. sept. n.k.

Föstudaginn 15. september nk. kl.17:30 -19:30 munum við hittast og skemmta okkur saman,  minnug þess skv. 4 lið um tilgang félagsins “að vera vettvangur fyrir gagnkvæm kynni félagsmanna”. Fyrirtækið Maritech mun bjóða upp á léttar veitingar (áfengar og óáfengar) og puttamat, en ennfremur munu þeir verða með fyrirtækjakynningu. Einnig mun Helga Jónsdóttir hjá IMG/Capacent koma […]