Category: Efni frá RSK

Tekjuskattur einstaklinga

Tekjuskattur einstaklinga Nú um áramót taka gildi umfangsmiklar breytingar á tekjuskatti. Eru þær breytingar afrakstur vinnu um heildarendurskoðun tekjuskattskerfisins til lækkunar á skattbyrði. Ábati breytinganna skilar sér til allra tekjutíunda en sérstaklega til lág- og millitekjuhópa. Tekið er upp þriggja þrepa kerfi með nýju og lægra grunnþrepi.