Category: Efni frá RSK

NÝTT – Aðgengi að efni á rsk.is bætt

„Búið er að setja upp „megamenu“ (eða ofurvalmynd) á rsk.is, en í því felst að þegar notandi fer með músina yfir meginflokkana (einstaklingar, rekstur/félög, fagaðilar, fyrirtækjaskrá og um RSK) þá kemur upp valmynd sem birtir undirflokkana og efni hvers undirflokks.  Með þessu er aðgengi að efni vefsins einfaldað og stytt til muna.  Endilega prófið á […]

Tilkynning frá Skattstofunni í Reykjavík

Núna í morgun var aðalsímanúmer skattstofunnar í Reykjavík (560 3600) flutt yfir á aðalsímanúmerið  á Laugaveginum (563 1100). Til að ná sambandi við starfsmenn sem eru á Tryggvagötu þarf því að hringja beint í þá.   Viðskiptavinir RSK sem þurfa sérstaklega að fá samband við atvinnurekstrardeildina á Tryggvagötu verður því gefið samband frá þjónustuverinu og […]

Frumvarp til laga um breyting á lögum um tekjuskatt (skattaleg meðferð á eftirgjöf skulda) .

Meðfylgjandi er frumvarp til laga um breyting á tekjuskattslögum. Lagt er  ákvæði til bráðabirgða um skattalega meðferð á eftirgjöf skulda hjá móttakanda eftirgjafarinnar.Skal það ná til áranna 2009, 2010 og 2011. Með vissum skilyrðum geta skv. frumvarpinu  rekstraraðilar talið til tekna  50% af eftirgjöf skulda vegna rekstrar- og greiðsluerfiðleika upp að samtals 50 m.kr., og […]

Reglur um þverfaglegt meistaranám við Háskóla Íslands í skattarétti og reikningsskilum.

Nr. 484 18. maí 2010 REGLUR um þverfaglegt meistaranám við Háskóla Íslands í skattarétti og reikningsskilum. 1. gr. Gildissvið. Reglur þessar gilda um meistaranám í skattarétti og reikningsskilum við Háskóla Íslands. Námið er þverfaglegt og skipulagt sameiginlega af viðskiptafræðideild annars vegar og lagadeild hins vegar. Reglur um meistaranámið eru sérreglur gagnvart ákvæðum 69. gr. reglna […]

Næsti gjalddagi virðisaukaskatts er 7. júní

Næsti gjalddagi virðisaukaskatts, fyrir tímabilið mars-apríl, er mánudagurinn 7. júní nk.    HVENÆR ÞARF AÐ VERA BÚIÐ AÐ GREIÐA Athugið að ef greitt er í vefbanka þarf að ganga frá greiðslu fyrir kl. 21:00 á gjalddaga til þess að hún bókist samdægurs. Krafan er sýnileg í vefbanka til kl: 21 á gjalddaga.    KRAFA FINNST EKKI […]

Áminning um framtalsskil einstaklinga 2010. Send út í dag

Eftirfarandi er til fróðleiks og upplýsinga. „Ágæti viðtakandi. xxxxxxx kt xxxxx Vakin er athygli á því að nú eru allir framtalsfrestir einstaklinga liðnir vegna skila á skattframtali 2010 og skattframtal frá þér hefur ekki borist. Ef framtalið er í vinnslu hjá endurskoðanda eða bókara þarftu ekki að bregðast við þessum pósti. Tölvupóstfang þitt hefur verið gefið […]