Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
1. Gisting og fæði í einn sólarhring |
kr. 22.700
|
2. Gisting í einn sólarhring |
kr. 10.700
|
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag |
kr. 12.000
|
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag |
kr. 6.000
|
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2019. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2019 dags. 15. maí 2019.
Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.