Search
Close this search box.

Dómur. Refsimál. Hafþór Sigtryggsson.

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 30. nóvember í máli nr. S-708/2010:

Ákæruvaldið

(Einar Tryggvason aðstoðarsaksóknari)

gegn

Hafþóri Sigtryggssyni

 

 

Ár 2010, þriðjudaginn 30. nóvember, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 708/2010:  Ákæruvaldið (Einar Tryggvason) gegn Hafþóri Sigtryggssyni, sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með ákæru ríkislögreglustjóra, dagsettri 22. október sl. á hendur ákærða, Hafþóri Sigtryggssyni, kennitala 000000-0000, Grænlandsleið 28, Reykjavík, „fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum, framin í sjálfstæðri atvinnustarfsemi ákærða, með því að hafa:

1.        Hvorki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum, né staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfseminni á árinu 2006, í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð kr. 4.158.037, sem sundurliðast sem hér greinir:

 

Uppgjörstímabil: Vantalin skattskyld velta: Vangoldinn VSK:
Árið 2006
janúar – febrúar kr. 3.809.037 kr. 933.213
mars – apríl kr. 4.356.627 kr. 1.067.373
maí – júní kr. 1.811.526 kr. 443.823
júlí – ágúst kr. 2.291.800 kr. 561.491
september – október kr. 2.438.800 kr. 597.506
nóvember – desember kr. 2.263.800 kr. 554.631
kr. 16.971.590 kr. 4.158.037
Samtals: kr. 16.971.590 kr. 4.158.037

 

 

2.        Eigi staðið skil á skattframtali sínu gjaldárið 2007 vegna tekjuársins 2006 og þannig ekki talið fram til skatts tekjur sínar af eigin atvinnustarfsemi sem skattskyldar eru, samkvæmt 1. tölulið A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. einnig 19. og 21. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, og með þessu komið sér undan greiðslu tekjuskatts og útsvars samtals að fjárhæð kr. 2.778.228, sem sundurliðast sem hér greinir:

Vangreiddur tekjuskattur tekjuárið 2006:
Rekstrartekjur skv. rannsókn: kr. 16.971.590
Rekstrargjöld: kr. 2.747.951
Tekjuskattsstofn: kr. 14.223.639
Áætlaður tekjuskattsstofn ásamt álagi: kr. -6.670.000
Vantalinn tekjuskattsstofn: kr. 7.553.639
Vangreiddur tekjuskattur, tekjuskattsprósenta 23,75% kr. 1.793.989
Vangreitt útsvar, útsvarsprósenta 13,03% kr. 984.239
Vangreiddur tekjuskattur og útsvar gjaldárið 2007 samtals: kr. 2.778.228

 

 

3.        Látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald og vanrækt að varðveita bókhaldsgögn vegna sjálfstæðrar atvinnustarfsemi sinnar vegna rekstrarársins 2006.

 

Framangreind brot ákærða samkvæmt 1. og 2. tölulið ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:

a)      1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 1. tölulið ákæru.

b)      2. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, að því er varðar 2. tölulið ákæru.

 

Framangreind brot ákærða samkvæmt 3. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. og 2. tölulið 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“

 

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis.  Ákærði hefur áður gerst sekur um hegningarlagabrot.  Fram er komið í málinu að hann átti við spilafíkn að stríða um tólf ára skeið og að það hafi leitt hann út í afbrot.  Hann kveðst þó hafa unnið bug á þeirri fíkn.  Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 7 mánuði.  Rétt er að fresta því að framkvæma refsingu þessa og fellur hún niður að liðnum 2 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Dæma ber ákærða auk þess til þess að greiða 20.800.000 krónur í sekt  og ákveða að í stað sektarinnar komi fangelsi í 4 mánuði, greiðist hún ekki innan 4 vikna frá dómsbirtingu.

Sakarkostnað hefur ekki leitt af málinu.

 

DÓMSORÐ:

Ákærði, Hafþór Sigtryggsson, sæti fangelsi í 7 mánuði.  Framkvæmd refsingar þessarar er frestað og fellur hún niður að 2 árum liðnum, haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði greiði 20.800.000 krónur í fésekt og komi fangelsi í 4 mánuði í stað sektarinnar, greiðist hún ekki innan 4 vikna frá dómsbirtingu.

 

Pétur Guðgeirsson

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur