Search
Close this search box.

Dómur. Refsimál. Jón Stefánsson

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness, þriðjudaginn 21. desember 2010, í máli nr. S-864/2010:

Ákæruvaldið

(Eyjólfur Ármannsson ftr.)

gegn

Jóni Stefánssyni

 

Mál þetta, sem dómtekið var 7. desember 2010, er höfðað með ákæru ríkislögreglustjóra, útgefinni 12. október 2010, á hendur Jóni Stefánssyni, kt. 000000-0000, Víðihvammi 13, Kópavogi „fyrir fyrir meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum framin í sjálfstæðri atvinnustarfsemi ákærða, með því að hafa:

 

1. Eigi skilað virðisaukaskattskýrslum vegna allra uppgjörstímabila áranna 2002 til og með 2008, en með þessu var eigi talin fram skattskyld velta vegna sömu tímabila samtals að fjárhæð kr. 64.380.610, og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfseminni á sama tíma, í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988, samtals að fjárhæð kr. 11.673.745, sem sundurliðast sem hér greinir:

 

 

Uppgjörstímabil:

 

Vantalin skattskyld velta: Vangoldinn VSK:
Árið 2002

mars-apríl

maí-júní

júlí-ágúst

september-október

nóvember-desember

 

 

kr.      1.606.426

kr.      1.076.305

kr.      1.669.526

kr.      2.632.129

kr.      3.280.918

kr.    10.265.304

kr.       215.317

kr.       213.533

kr.       344.658

kr.       632.120

kr.       721.143

kr.    2.126.771

 

Árið 2003

janúar-febrúar

maí-júní

júlí-ágúst

september-október

nóvember-desember

 

kr.      1.012.048

kr.      2.497.965

kr.         963.856

kr.      2.425.079

kr.      3.713.745

kr.    10.612.693

kr.       243.337

kr.       561.957

kr.       107.250

kr.       435.182

kr.       684.493

kr.   2.032.219

 

Árið 2004

janúar-febrúar

mars-apríl

maí-júní

júlí-ágúst

september-október

nóvember-desember

 

kr.      1.100.683

kr.      1.261.446

kr.      2.065.060

kr.      2.029.373

kr.      1.693.856

kr.      1.934.874

kr.    10.085.292

kr.       232.256

kr.       282.614

kr.       383.315

kr.       164.077

kr.       379.764

kr.       246.215

kr.   1.688.241

 

Árið 2005

janúar-febrúar

mars-apríl

maí-júní

júlí-ágúst

september-október

nóvember-desember

 

kr.         214.458

kr.         578.313

kr.      1.898.634

kr.      2.600.360

kr.      4.804.033

kr.      2.245.262

kr.    12.341.060

kr.         42.490

kr.       124.969

kr.       169.657

kr.       150.967

kr.       797.556

kr.                  0

kr.   1.285.639

 

Árið 2006

janúar-febrúar

maí-júní

júlí-ágúst

september-október

nóvember-desember

 

kr.         401.606

kr.         702.450

kr.      1.759.839

kr.      2.595.100

kr.      1.054.419

kr.     6.513.414

kr.         86.299

kr.       145.793

kr.       386.843

kr.       599.489

kr.       219.658

kr.    1.438.082

 

Árið 2007

janúar-febrúar

mars-apríl

maí-júní

júlí-ágúst

september-október

nóvember-desember

 

kr.         476.305

kr.         847.390

kr.      1.253.012

kr.         911.325

kr.      1.575.255

kr.      3.176.226

kr.     8.239.513

kr.       101.936

kr.       161.599

kr.       236.396

kr.       154.719

kr.       289.970

kr.       737.612

kr.    1.682.232

 

Árið 2008

maí-júní

júlí-ágúst

september-október

nóvember-desember

 

 

Samtals:

 

kr.      1.696.305

kr.      1.847.390

kr.      1.624.739

kr.      1.154.900

kr.     6.323.334

 

kr.    64.380.610

kr.       397.046

kr.       409.663

kr.       331.452

kr.       282.400

kr.    1.420.561

 

kr.  11.673.745

 

 

2. Látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald vegna sjálfstæðrar atvinnustarfsemi sinnar rekstrarárin 2002 til og með 2008.

Framangreind brot ákærða samkvæmt 1. tölulið ákæru teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005.

Framangreind brot ákærða samkvæmt 2. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. tölulið 1. mgr. 37. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald, sbr. 1. gr. laga nr. 37/1995.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“

 

Um málavaxtalýsingu er skírskotað til ákæru.

Við ákvörðun refsingar er litið til þess að verknaður ákærða stóð yfir í langan tíma og varðaði verulega fjárhæð. Hins vegar ber að hafa í huga að ákærði hefur hreinskilnislega játað brot sín og að hann hefur ekki áður sætt refsingum. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í níu mánuði. Rétt þykir að fresta fullnustu þessarar refsingar ákærða og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Jafnframt er ákærða gert að greiða 35.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, ella sæti ákærði fangelsi í sex mánuði.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.

 

Dómsorð:

Ákærði, Jón Stefánsson, sæti fangelsi í níu mánuði, en fullnustu refsingarinnar er frestað og skal hún falla niður að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði 35.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, ella sæti ákærði fangelsi í sex mánuði.

 

Ragnheiður Bragadóttir

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur