Félag viðurkenndra bókara óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu félagsins.
Ráðið er í 30% stöðu og miðað við að nýr starfsmaður taki til starfa eigi síðar en 1. júlí.
Við leitum að viðurkenndum bókara sem er nákvæmur, skipulagður og getur unnið sjálfstætt. Góð þekking á DK bókhaldskerfi kostur og gott ef viðkomandi kann inn á félagakerfið í DK. Viðvera á skrifstofu og annar vinnutími eftir samkomulagi. Umsókn ásamt ferilskrá sendist til [email protected] fyrir 25. maí næstkomandi.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.