Námskeið Fræðslunefndar í apríl 2023
Mánudaginn 24. apríl frá kl. 8.30 til ca 9.30 /10.00 á Zoom
Erfðamál fyrirlestur 2
Hjúskapareignir – skjalagerð
Á þessu námskeiði köfum við dýpra í séreignir og hjúskapareignir. Áhersla á að sýna dæmi af skjölum eins og erfðaskrám, kaupmálum, erfðafjárskýrslum og líftryggingarskírteinum sem hafa áhrif á flokkun eigna og hvernig best er að tryggja rekjanleika.
Þátttakendur fá afhentar glærur að loknu námskeiði.
Fyrirlesari er Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, lögmaður og framkvæmdastjóri Lagastoðar sem hefur víðtæka reynslu og þekkingu á þessum málaflokki.
Gott framhald fyrir alla sem voru á ráðstefnunni okkar í nóvember í fyrra, voru á fyrirlestrinum hennar Sveinbjargar 13. apríl og fyrir alla þá sem vilja kynna sér enn betur erfðamálin.
Staður og tími:
MÁNUDAGURINN 24. APRÍL KL. 8.30 TIL 9.30/10.00 Á ZOOM
ATHUGIÐ FYRIRLESTURINN ER AÐEINS Í RAUNTÍMA (EKKI UPPTAKA)
LINKUR TIL AÐ FYLGJAST MEÐ VERÐUR SENDUR Á ÞAÐ PÓSTFANG SEM ÞÚ GEFUR UPP Í SKRÁNINGUNNI. AFBÓKUN: SENDIST Á PÓSTFANGIÐ [email protected] A.M.K. 2 DÖGUM FYRIR NÁMSKEIÐ.
Verð fyrir félagsmenn aðeins kr. 3.900. – Fyrir fólk utan félags kr. 5.900
ATH. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.
Námskeiðið gefur 2 endurmenntunarpunkta
Skráning er á vef FVB til og með sunnudagsins 23. apríl nk