Haust námskeið Fræðslunefndar 2023
Námskeiðið er haldið á Zoom
EXCEL NÁMSKEIÐ – UPPRIFJUN, NÝJUNGR OFL.
Kennari: Sigurður Friðriksson kennari og áður skólastjóri Promennt. Sigurður er okkur vel kunnugur því hann hefur kennt hjá okkur undanfarin ár bæði Excel námskeið sem alltaf hafa verið vinsæl og vel heppnuð ásamt því að kenna Outlook ofl.
Námskeiðið er 2 skipti og verður haldið á Zoom mánudaginn 25. og miðvikudag 27. September nk. Tími: 9.00-12.00 báða daga.
Um námskeiðið:
Það sem verður tekið fyrir er:
- Almenn upprifjun og æfingar með áherslu á ýmsar flýtiaðgerðir.
- Helstu nýjungar og ný föll sem að gagni geta komið.
- Excel Online vs. Excel Desktop og helsti munur á útgáfum.
- Flýtilyklar
- Annað skv. Óskum þátttakenda.
ATHUGIÐ AÐ TAKMARKAÐUR FJÖLDI KEMST Á HVERT NÁMSKEIÐ
EF ÞESSI HÓPUR FYLLIST ÞÁ MUNUM VIÐ BJÓÐA UPPÁ FLEIRI NÁMSKEIÐ Í OKTÓBER
Verð fyrir félagsmenn aðeins kr. 6.900. – Fyrir fólk utan félags kr. 8.900.
Ódýrasta Excel námskeiðið á Íslandi.
ATH. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.
Námskeiðið gefur 9 endurmenntunarpunkta
Skráning er á vef FVB til og með sunnudagsins 24. September nk.
Fræðslunefndin