Kæru félagsmenn,
Vinsamlega skráið ykkur inn á heimasíðu félagsins og uppfærið persónuupplýsingar þar sem töluvert hefur borið á því að netföng og aðrar upplýsingar eru ekki réttar og lendum við því oft í villum þegar við erum að senda út reikninga, fréttabréf og aðrar tilkynningar. Einnig er mikilvægt að þar komi fram greiðandi ef annar en félagsmaður. Félagsgjöld ársins 2012 verða send bráðlega og er miðað við félagaskrána á vefsíðunni okkar. Reikningar vegna félagsgjalda og námskeiða verða eingöngu sendir á það netfang sem skráð er þar og er félagsmaður skuldbundinn til þess að koma reikningi á þann sem greiðir ef annar en félagsmaður. Kröfur eru svo stofnaðar á banka á kennitölu skráðs greiðanda.
Fyrir hönd stjórnar
Júlía Sigurbergsdóttir, formaður