Kæru félagsmenn,
Vinsamlega skráið ykkur inn á heimasíðu félagsins og uppfærið persónuupplýsingar þar sem töluvert hefur borið á því að netföng og aðrar upplýsingar eru ekki réttar og lendum við því oft í villum þegar við erum að senda út reikninga, fréttabréf og aðrar tilkynningar. Einnig er mikilvægt að þar komi fram greiðandi ef annar en félagsmaður. Félagsgjöld ársins 2013 verða send út í byrjun mars og er miðað við félagaskrána á vefsíðunni okkar. Reikningar vegna félagsgjalda og námskeiða verða eingöngu sendir á það netfang sem skráð er þar og er félagsmaður skuldbundinn til þess að koma reikningi á þann sem greiðir ef annar en félagsmaður. Kröfur eru svo stofnaðar á banka á kennitölu skráðs greiðanda.
Fyrir hönd stjórnar
Júlía Sigurbergsdóttir, formaður