Ráðstefnan er fullbókuð
Febrúarráðstefna Félags viðurkenndra bókara
Föstudaginn 10. febrúar 2012
Ráðstefna
Hótel Saga, Hagatorgi – Kötlusalurinn (áður Harvard) kl. 09:00 – 16:30
Verð kr. 8.500,- fyrir félagsmenn 15.000,- kr. fyrir þátttakendur utan félags.
Innifalið er kaffi og meðlæti, hádegismatur og fyrirlestrar.
Námskeiðið gefur 15 einingar
Afmælisfögnuður
Í tilefni 10 ára afmælis félagsins – léttar veitingar í boði
Hótel Saga, Hagatorgi – Snæfellssalurinn Kl. 17:00 – 19.00
Dagskrá:
09:00 – 09:05 Setning ráðstefnu
09:05 – 10:20 Tölur frá öðru sjónarhorni – Hermundur Rósinkranz, talnaspekingur
10:20 – 10:30 Kaffihlé
10:30 – 12:00 Skattalagabreytingar ársins 2012 – Fulltrúar frá RSK
12:00 – 13:00 Hádegishlé
13:00 – 13:15 Launakönnun 2012
13:15 – 15:05 Laun og launaviðtal – hvers virði er ég? – Aðalsteinn Leifsson, lektor HR
15:05 – 15:25 Kaffihlé
15:25 – 16:45 Bókhaldsleg færsla skattalagabreytinga, fyrirspurnir – Lúðvík Þráinsson
16:45 – 16:50 Ráðstefnuslit
17:00 – 19:00 Afmælisfagnaður
Þátttaka á ráðstefnu skráist á vef fvb.is fyrir 6. febrúar n.k.(Ekki þarf að skrá sig sérstaklega vegna afmælisfagnaðar). Vinsamlegast tilgreinið nafn, kennitölu og heimilisfang og ef greiðandi er annar, (t.d. fyrirtæki eða vinnuveitandi). Þátttakendur þurfa að afskrá sig ef til forfalla kemur, í síðasta lagi klukkustund áður en ráðstefna hefst.Ef það er ekki gert sér félagið sér ekki annað fært en að senda reikning á viðkomandi vegna ráðstefnugjaldanna.Afskráning er framkvæmd á síðu félagsins eða með því að senda póst á [email protected].
Muna eftir að mæta með nafnspjöldin og fartölvu ef vill !
Námskeiðsgögn verða aðgengileg á síðu FVB en ekki prentuð út til dreifingar.
Þátttakendur ráðstefnunnar geta leigt herbergi á Hótel Sögu á sérkjörum.
Eins manns herbergi með morgunmat kr. 12.000,- og tveggja manna kr. 14.000