Search
Close this search box.

Ferðaþjónusta. . Reglur frá 1. janúar 2016

Ferðaþjónusta.
.
Reglur frá 1. janúar 2016
AlmenntFerðaþjónusta og önnur ferðatengd þjónusta er almennt virðisaukaskattsskyld. Í ákveðnum tilvikum er velta þó undanþegin virðisaukaskatti. Þjónustan getur verið skattskyld í almennu skatthlutfalli virðisaukaskatts, 24%, í lægra skatthlutfalli virðisaukaskatts, 11%. Ef velta er undanþegin virðisaukaskatti ber ekki að innheimta virðisaukaskatt af sölu þjónustunnar en heimilt er að færa virðisaukaskatt vegna aðfanga til frádráttar sem innskatt.

Sala á gistiþjónustu

Útleiga hótel- og gistiherbergja og útleiga tjaldstæða er í lægra skatthlutfalli sem og önnur gistiþjónusta þegar leigt er til skemmri tíma en eins mánaðar. 

Önnur gistiþjónusta

Önnur gistiþjónusta en útleiga hótel- og gistiherbergja og tjaldstæða er skattskyld þegar leigt er til skemmri tíma en eins mánaðar. Hér má nefna gistingu á einkaheimilum (þ.m.t. sveitabæjum) veiðihúsum, í sumarbústöðum, sumarbúðum og gistiskálum hvers konar. 

Hafi aðili að einhverju leyti með höndum sölu á gistingu til skemmri tíma en eins mánaðar, ber honum að innheimta 11% virðisaukaskatt af starfsemi sinni, enda sé hún í atvinnuskyni gerð. 

Hafi aðili hins vegar eingöngu með höndum leigu á húsnæði til lengri tíma en eins mánaðar, telst starfsemi hans til fasteignaleigu sem er undanþegin virðisaukaskatti, enda séu almenn skilyrði fasteignaleigu uppfyllt. Í þessu sambandi ber að nefna að aðstöðuleiga er virðisaukaskattsskyld þjónusta í 24% skatthlutfalli.

Sala á gistiþjónustu í blandaðri starfsemi

Almenna reglan er sú að hafi aðili að einhverju leyti með höndum sölu á annarri gistingu en hótel- og gistiherbergi eða tjaldstæði, til skemmri tíma en eins mánaðar, ber honum að innheimta 11% virðisaukaskatt af starfsemi sinni, enda sé hún í atvinnuskyni gerð. Aðili sem hefur með höndum fasteignaleigu í að minnsta sjö mánuði á tólf mánaða tímabili, en skattskylda gistiþjónustu í fimm mánuði eða skemur, getur haldið fasteignaleigunni utan við skattskyldusviðið, enda hafi hann ekki með höndum á sama tíma sölu á skattskyldri gistiþjónustu. Þannig geta t.d. eigendur einkaheimila, skóla og verbúða, sem selja skattskylda gistiþjónustu á sumrin, leigt út herbergi á veturna til lengri tíma en eins mánaðar án virðisaukaskatts enda hafi þeir ekki með höndum sölu á skattskyldri gistiþjónustu á sama tíma. 

Tjaldstæði

Útleiga tjaldstæða ber 11% virðisaukaskatt hvort sem leigt er til skemmri eða lengri tíma en eins mánaðar. Aðgangur að rafmagni, snyrtingu og sturtum á tjaldstæði telst hluti af gistiþjónustunni og því skattskyldur í sama skatthlutfalli, hvort sem sú þjónusta er innifalin í aðgangseyri að tjaldsvæði eða seld sérstaklega til gesta tjaldsvæðisins. Ef aðgangur að rafmagni, snyrtingu og sturtu er ekki í neinum tengslum við sölu á gistingu þá ber sú þjónusta 24,0% virðisaukaskatt.

Innskattur vegna gistiþjónustu

Almennar reglur gilda um frádrátt innskatts í virðisaukaskattsskyldri gistiþjónustu.

Selji aðili skattskylda gistiþjónustu í blandaðri starfsemi þá getur hann nýtt sér innskatt í sama hlutfalli og sala skattskyldrar vöru og þjónustu (án virðisaukaskatts) er af heildarveltu ársins. Ef húsnæði er notað að hluta fyrir gistiþjónustu en að hluta til annarra nota þar sem engum frádráttarrétti er til að dreifa er heimilt að telja til innskatts virðisaukaskatt vegna aðkeyptrar vinnu við endurbætur, viðgerðir og viðhald að því leyti sem þessi vinna varðar beinlínis þann hluta húsnæðisins sem notaður er fyrir skattskyldan rekstur. Skilyrði er að seljandi vinnu eða þjónustu taki fram á sölureikningi sínum við hvaða hluta húsnæðisins hafi verið unnið. Ef slík vinna varðar ekki beinlínis ákveðinn hluta húsnæðisins er heimilt að reikna virðisaukaskatt til innskatts í sama hlutfalli og flatarmál þess hluta eignar sem notuð er vegna skattskyldrar starfsemi er af heildarflatarmáli eignarinnar.

Sá sem rekur gistiþjónustu í heimahúsi getur ekki talið til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum er varðar öflun eða rekstur íbúðarhúsnæðis. Hins vegar getur hann talið til innskatts þau aðföng er sannarlega varða gistiþjónustu s.s. rúm, dýnur, sængurver o.fl.

Ef atvinnuhúsnæði (til gistiþjónustu) og íbúðarhúsnæði er í sömu byggingu verður skipting í þessa tvo flokka húsnæðis að liggja fyrir á formlegan hátt með skráningu í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands ef telja á aðföng vegna húsnæðisins til innskatts. Liggi slík skráning fyrir er skráðum aðila heimilt að telja til innskatts virðisaukaskatt af byggingarframkvæmdum o.s.frv. við atvinnuhúsnæðið, enda noti hann það einungis fyrir skattskylda starfsemi sína og ekki á neinn hátt til íbúðar.

Verði breyting á forsendum fyrir frádrætti innskatts vegna skattskyldrar starfsemi, t.d. ef aðili hættir með virðisaukaskattsskylda gististarfsemi, ber að leiðrétta áður fenginn innskatt af varanlegum rekstrarfjármunum eftir nánari reglum sem fram koma í reglugerð um innskatt.

Innskattur vegna fæðissölu á einkaheimilum

Sá sem rekur gistiþjónustu í heimahúsi getur ekki talið til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum er varðar öflun eða rekstur íbúðarhúsnæðis nema að því er varðar sérgreindan hluta húsnæðisins þar sem starfsemin fer fram og ef það er notað að öllu leyti fyrir starfsemina. Ef aðili á engan innskattsrétt, eða einungis að hluta, getur hann sótt um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu manna á byggingarstað. Aftur á móti getur hann talið til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum er sannarlega verða gistiþjónustu, s.s. rúm, dýnur, sængurver o.fl. 

Verði breyting á forsendum fyrir frádrætti innskatts vegna skattskyldrar starfsemi, t.d. ef aðili hættir með virðisaukaskattsskylda gististarfsemi, ber að leiðrétta áður fenginn innskatt af varanlegum rekstrarfjármunum eftir nánari reglum sem fram koma í reglugerð um innskatt.

Þeir sem selja gistingu á einkaheimilum (þ.á m. ferðaþjónustubændur) hafa að öllu jöfnu ekki með höndum sérstakt mötuneyti fyrir viðskiptavini sína heldur snæða þeir með heimilisfólkinu. Fæðissalan ber 11% virðisaukaskatt, útskatt, en í þessu sambandi gilda sérstakar reglur um innskattsfrádrátt þar sem miðað er við að hlutur aðfanga í hverri máltíð nemi 40% af útsöluverði máltíðar, án virðisaukaskatts. Með aðföngum er hér átt við keypt hráefni til matargerðar að viðbættum ýmsum rekstrarvörum í eldhúsi svo og öðrum kostnaði við matargerð, s.s. orku og húsnæðiskostnaði.  

Ef verð vöru eða þjónustu, sem fellur undir 11% skatthlutfallið, er gefið upp með virðisaukaskatti er virðisaukaskatturinn 9,91% af því verði sem kaupandi greiðir. Til að finna verð án virðisaukaskatts, þegar heildarverð er gefið upp, þarf því að margfalda fjárhæðina með 90,09%.

Dæmi:  Miðað er við að hver máltíð sé seld á 1.500 kr. með virðisaukaskatti og að 20 máltíðir séu seldar á tímabilinu.  

            Virðisaukaskattsskyld velta :

                        20 x 1.500 kr. = 30.000 kr. (með vsk.)

                        30.000 x 90,09% = 27.027 kr. (án vsk)

            Útskattur:

                        27.027 x 11% = 2.973 kr.

            Innskattur:

                        27.027 x 40% = 10.810 kr. (aðföng án vsk.)

                        10.810 x 11%= 1.189 kr.

            Skil:

                        2.973 kr. – 1.189 kr. = 1.784 kr.

 

Fólksflutningar innanlands

Almenningssamgöngur eru undanþegnar virðisaukaskatti. Undanþágan nær einnig til skipulagðrar ferðaþjónustu fatlaðs fólks, skipulagðs flutnings skólabarna, sjúkraflutninga og aksturs leigubifreiða. Að því leyti sem fólksflutningar eru undanþegnir virðisaukaskatti nær undanþágan einnig til farangurs farþega og flutnings ökutækja sem er í beinum tengslum við flutning farþega. Til farangurs í þessu sambandi teljast m.a. reiðhjól og hjólastólar.

Aðrir fólksflutningar en að framan greinir eru skattskyldir í lægra skatthlutfalli, þ.m.t. ýmiss konar skipulagðar hópferðir undir leiðsögn í afþreyingarskyni, svo sem hestaferðir, vélsleðaferðir, fjórhjólaferðir, hvalaskoðunarferðir, sjóstangaveiðiferðir og útsýnisferðir.

Skattskyldan í hinu lægra skatthlutfalli virðisaukaskatts gildir einnig um farangur farþega og afnot af búnaði sem sem skipuleggjandi ferðar leggur farþegum til í ýmiss konar skipulagðar hópferðir undir leiðsögn í afþreyingarskyni. Það telst aftur á móti til skattsskyldrar lausafjárleigu í almennu skatthlufalli virðisaukaskatts ef annar en skipuleggjandi farar leggur farþega til búnað og fararskjóta í ferðina og ef afnotarétturinn takmarkast ekki að öllu leyti við hana.

Fólksflutningar milli landa

Þegar um er að ræða fólksflutninga milli landa er veltan vegna þeirra fólksflutninga undanþegin virðisaukaskatti, þ.e. veltan er sérstaklega undanþegin þótt þjónustan sem slík falli ekki undir framangreinda undanþágu. Í því felst að ekki ber að innheimta virðisaukaskatt af slíkum fólksflutningum. Í þeim tilvikum nýtur söluaðili engu að síður frádráttarréttar í formi innskatts af aðföngum sínum ólíkt því sem á við um almenningssamgöngur.

Þjónusta leiðsögumanna

Þjónusta sjálfstæðra leiðsögumanna í atvinnuskyni er virðisaukaskattsskyld í almennu skatthlutfalli og skiptir ekki máli hvort þeir selji þjónustu sína til aðila sem hafa með höndum starfsemi undanþegna virðisaukaskatti eða til aðila sem hafa með höndum virðisaukaskattsskylda starfsemi.

Leiga lausafjármuna og bílaleiga

Bílaleiga er virðisaukaskattsskyld í hærra skatthlutfalli. Einnig er önnur leiga lausafjár í atvinnuskyni virðisaukaskattsskyld í sama hlutfalli, þ.m.t. hestaleiga, vélsleðaleiga og leiga á fjórhjólum þegar ekki er um að ræða leigu í tengslum við skipulagða ferð undir leiðsögn fararstjóra. 

Starfsemi ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjenda og ferðafélaga

Þjónusta ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda er virðisaukaskattsskyld, þ.m.t. vegna milligöngu um viðskipti hér á landi, umboðs- og umsýsluviðskipta og til endursölu á vörum eða þjónustu hér á landi. Þá nær skattskyldan einnig til þóknunar ferðaskrifstofu vegna skipulagningar ferðar ferðamanns og fyrir að útvega honum t.d. farmiða, gistingu, mat og aðra ferðaþjónustu.

Skattskyldan tekur á sama hátt einnig til ferðafélaga vegna starfsemi sem þau hafa með höndum á starfssviði ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda, en starfsemi ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda er leyfisskyld skv. sömu lögum.

Eingöngu sú þjónusta sem nýtt er innanlands er skattskyld og er skattskyldan óháð því hvort seljandi er innlendur eða erlendur aðili. Sala á þjónustu íslenskra ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda sem nýtt er utan Íslands telst til undanþeginnar veltu. Af slíkri sölu ber því ekki að innheimta virðisaukaskatt, en heimilt er að færa virðisaukaskatt vegna kaupa á aðföngum sem innskatt.

Að því leyti sem þjónusta ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda varðar fólksflutninga milli landa og vöru eða þjónustu sem ferðamaður nýtir utan Íslands er um að ræða veltu sem undanþegin er virðisaukaskatti. Þannig telst t.a.m. sala ferðaskrifstofu eða milliganga um sölu í hefðbundnar sólarlandaferðir til undanþeginnar veltu, þ.e. að ekki er innheimtur virðisaukaskattur af þjónustunni en ferðaskrifstofan nýtur engu að síður frádráttarréttar í formi innskatts af aðföngum vegna sölunnar. Aftur á móti getur ferðaskrifstofan ekki talið til innskatts á virðisaukaskattsskýrslu þann virðisaukaskatt sem hún kann að greiða af kostnaði við aðföng sem fellur til erlendis.

Skattskyld velta í almennu skatthlutfalli (24%)

Þóknun ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjenda og ferðafélaga fellur undir hærra skatthlutfallið að því leyti sem hún er um milli­göngu viðskipta sem tilheyra því skatthlutfalli. Þannig fellur t.d. þóknun fyrir milli­göngu um leigu lausafjármuna án stjórnanda, svo sem bílaleigubíla, vélsleða og fjórhjóla, undir hærra skatthlutfallið. Sama gildir um umboðs- og umsýslusölu og endursölu á vöru og þjónustu sem fellur undir almenna skatthlutfallið. Rétt er að vekja athygli á að þegar um umboðs- eða umsýsluviðskipti er að ræða reiknast virðisaukaskattur af heildarandvirði hins selda.

Skattskyld velta í lægra skatthlutfalli (11%)

Þóknun ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjenda og ferðafélaga fyrir milligöngu um sölu eða afhendingu á vörum og þjónustu sem fellur undir lægra skatthlutfall virðisaukaskatts ber virðisaukaskatt í sama hlutfalli. Á það t.d. við um milligöngu um sölu eða afhendingu á gistiþjónustu, veitingum, fólksflutningum og þjónustu baðstaða. Sama gildir um umboðs- og umsýslusölu og endursölu þessara aðila á vöru og þjónustu sem fellur undir hið lægra skatthlutfall. Gagnvart virðisaukaskatti skiptir því ekki máli hvort ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og ferðafélög kaupa og endurselja vöru eða þjónustu sem fellur undir lægra skatthlutfallið eða taka þóknun fyrir að koma á viðskiptum með slíka vöru eða þjónustu.

Þóknun fyrir milli­göngu um sölu á þjónustu sem undanþegin er virðisaukaskatti, t.d. um sölu veiðileyfa í ár og vötn og sölu að­göngumiða að íþróttakappleik eða að tónleikum, fellur einnig undir lægra skatthlutfallið. Er litið svo á að milliganga um kaup hinnar undanþegnu þjónustu geti ekki talist liður í þeirri þjónustu. Þar sem þjónusta ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjenda og ferðafélaga felst fyrst og fremst í milli­göngu um þjónustu sem fellur undir lægra skatthlutfallið er milliganga um þjónustu af þessum toga einnig felld undir sama skatthlutfall.

Endursala á undanþeginni þjónustu

Endursala ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda á þjónustu sem undanþegin er virðisaukaskatti og umboðs- og umsýslusala þeirra á slíkri þjónustu er jafnframt undanþegin virðisaukaskatti og telst því hvorki til skattskyldrar veltu þeirra né til undanþeginnar veltu.  Aftur á móti er þóknun þeirra fyrir umboðs- og umsýslusölu undanþeginnar þjónustu skattskyld í lægra skatthlutfalli eins og að framan greinir.

Blönduð sala – aðgreining á sölureikningum

Við sölu ferðaskrifstofa, ferðaskipuleggjenda og ferðafélaga á vöru eða þjónustu sem er að hluta skattskyld og að hluta undanþegin virðisaukaskatti skal halda viðskiptum sem eru skattskyld greinilega aðgreindum á reikningi frá öðrum viðskiptum. Samkvæmt sömu ákvæðum skal jafnframt aðgreina á reikningi skattskylda sölu eftir skatthlutföllum þannig að heildarverð vöru og þjónustu ásamt virðisaukaskatti komi fram vegna hvors skatthlutfalls. Ef þessa er ekki gætt ber öll salan virðisaukaskatt í hinu almenna skatthlutfalli.

Skráning á virðisaukaskattsskrá

Sérhver skattskyldur aðili skal tilkynna ríkisskattstjóra um starfsemi sína eða atvinnurekstur til skráningar á virðisaukaskattsskrá, eigi síðar en átta dögum áður en starfsemi hefst. Hafi erlent fyrirtæki, t.d. ferðaskrifstofa eða fólksflutningafyrirtæki, sem sem rekur hér skattskylda starfsemi ekki fasta starfsstöð hérlendis ber því að fela umboðsmanni með heimilisfesti hér á landi að vera í fyrirsvari fyrir sig, þ.m.t. að tilkynna um starfsemina til ríkisskattstjóra, innheimta virðisaukaskatt af starfseminni og skila í ríkissjóð.

Ríkisskattstjóri færir aðila á virðisaukaskattsskrá, úthlutar skráningarnúmeri (vsk-númeri) og gefur út staðfestingu á að skráning hafi átt sér stað. Breytingar sem verða á starfsemi fyrirtækis eftir skráningu skal tilkynna til ríkisskattstjóra eigi síðar en átta dögum eftir breytinguna.

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur