Ferðakostnaðarnefndin:Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands. EKKI SKATTMAT!
Af vef fjmrn.pr 0406 212
“Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands – auglýsing nr.
2/2012
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
1. Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 27.700
2. 2. Gisting í einn sólarhring, kr. 17.780
3. 3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 9.920
4. 4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 4.960
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2012. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 4/2011 dags. 29. september 2011.
Í gildi eru hagstæðir rammasamningar Ríkiskaupa við hótel og gistihús um gistingu og veitingar fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands.
Nánari upplýsingar um samningana er að finna á vef Ríkiskaupa, rikiskaup.is, með aðgangsupplýsingum sem stofnunin veitir, [email protected].
Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga og rammasamningar um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.
Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi:
www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.
Reykjavík, 1. júní 2012.
Ferðakostnaðarnefnd”