Föstudaginn 15. september nk. kl.17:30 -19:30 munum við hittast og skemmta okkur saman, minnug þess skv. 4 lið um tilgang félagsins “að vera vettvangur fyrir gagnkvæm kynni félagsmanna”. Fyrirtækið Maritech mun bjóða upp á léttar veitingar (áfengar og óáfengar) og puttamat, en ennfremur munu þeir verða með fyrirtækjakynningu. Einnig mun Helga Jónsdóttir hjá IMG/Capacent koma og ræða stöðu bókarans á markaðnum – framboð og eftirspurn. Rúsínan í pylsuendanum verður svo heimsókn Helgu Braga – en sú skemmtilega kona mun fara yfir hvernig við getum átt góð samskipti við hvort annað, viðskiptavini okkar og samstarfsmenn. |
Sjáumst hress Stjórn FVB sjá auglýsingu |