Við viðurkenndir bókarar eigum mjög skemmtilegt tímabil framundan, hluti uppgjöra að baki og ný framundan.
Til að létta okkur vinnuna ætlum við að fá tvo lögfræðinga til liðs við okkur, Pál Jóhannesson, hdl. (Tax and Legal hf) og Hólmgeir Elías Flosason, lögfr. (Ernst & Young), en þeir hafa verið stundakennarar í Háskólanum í Reykjavík s.l. misseri.
Félagið ætlar að standa fyrir tveimur námskeiðum 30.apríl og 15. maí 2009 í VR salnum (0. hæð)
Fyrstir koma, fyrstir fá og fer skráning fram á vefsíðu félagsins www.fvb.is (sjá vinstra megin undir "Skráning á viðburði").
Verð er kr. 1.000 á hvern félagsmann fyrir hvort námskeið. Athugið að rukkun verður send ef forföll eru ekki tilkynnt (nánari útskýringar á skráningu og afskráningu má finna á www.fvb.is undir "Hjálp" í valmyndinni)
Félagsmenn eru ekki bundnir við að skrá sig á bæði námskeiðin, en hvort námskeið gefur 4 endurmenntunarpunkta.
30.apríl 2009 kl. 17:00-19:30, Páll Jóhannesson, hdl.
Virðisaukaskattur – í viðskiptum við útlönd:
Hvenær er þjónusta flutt úr landi = undanþegin velta og hvenær ber innflytjandi þjónustu ábyrgð á vsk?
Síðasti skráningardagur er 27. Apríl 2009
15.maí 2009 kl. 17:00-19:30, Hólmgeir Elías Flosason lögfr.
Skattaréttur:
Skattahugtakið, skattar og þjónustugjöld, samsköttun félaga, yfirfærsla einstaklingsréttar í einkahlutafélagi, skattasniðganga og aðgreining launþega frá verktökum.
Síðasti skráningardagur er 12. maí 2009
Skráið ykkur og eigum góða stund saman!
Hlé verður með veitingum!
ENDURMENNTUNARNEFNDIN