Kæru félagsmenn
Nú líður senn að aðalfundi og kosningu í starf formanns ásamt öðrum störfum í stjórn og nefndir. Við leitum að kröftugu og áhugasömu fólki til starfa.
Laus störf eru í stjórn félagsins, fræðslunefnd, skemmtinefnd, laga- samskipta- og aganefnd. Einnig eru störf varamanna stjórna og nefnda laus ásamt starfi skoðunarmanns og varamanns hans.
Þetta er tilvalin leið til að afla sér reynslu í félagsstarfi ásamt því að kynnast skemmtilegu fólki.
Áhugasamir sendi póst á [email protected] og verður þá framboð viðkomandi kynnt á aðalfundi
Við hlökkum til nánari samstarfs.
Kveðja
Fyrir hönd stjórnar
Júlía Sigurbergsdóttir
Formaður FVB