Frestur endurskoðenda og bókara til að skila skattframtölum framlengdur
Ríkisskattstjóri hefur framlengt frest þeirra sem atvinnu hafa af framtalsgerð, til skila á einstaklingsframtölum. Lokaskiladagur verður þriðjudagurinn 14. maí 2013 og gildir bæði um skattframtöl launamanna Mikilvægt er að framtölum verði skilað jöfnum höndum, svo fljótt sem auðið er. Þá er ennfremur minnt á mikilvægi þess að ljúka framtalsskilum fyrir bótaþega TR svo fljótt sem unnt er. Skattframtöl sem berast að loknum fresti verða afgreidd ef tími vinnst til og viðkomandi framtöl séu þannig úr garði gerð að þau séu tæk til álagningar. |