Febrúarráðstefnan árlega var haldinn þann 11. febrúar síðastliðinn. Gestir voru rúmlega 120 og tókst í alla staði mjög vel. Við þökkum fræðslunefnd FVB og fyrirlesurum kærlega fyrir daginn. Útskrift hjá HR fór fram sama dag og voru það 70 manns sem útskrifuðust hér í Reykjavík. Stjórn félagsins og tveir aðrir félagsmenn fóru og voru viðstödd útskriftina. Var félagið kynnt á meðal nýútskrifaðra bæði með ávarpi formanns og svo var öllum afhent mappa með kynningarfefni. Áhugi var mikill og voru margir þar á meðal sem skráðu sig í félagið. Útskrift á Akureyri var þann 18. febrúar í Símey, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar og voru útskrifaðir þar 13 manns. Formaður var viðstaddur ásamt einum stjórnarmeðlim og kynntu þeir félagið og tilgang þess. Voru útskriftarnemar mjög ánægðir með þetta framtak. Það er alveg ljóst að það þarf að efla endurmenntun á meðal félagsmanna á landsbyggðinni. Er það stefna okkar að fara af stað með námskeið þar í samvinnu við tengilið okkar á Akureyri. Við óskum öllum nýútskrifuðum viðurkenndum bókurum til hamingju með árangurinn og bjóðum þeim um leið velkomnum til aðildar við félag okkar. Kveðja, formaður FVB, Júlía Björg Sigurbergsdóttir