Kæru félagsmenn
Nú fer vetrarstarfið okkar senn að hefjast og eru stjórn og nefndir í óða önn að skipuleggja veturinn. Allir viðburðir verða auglýstir á síðunni okkar og einnig sendir með fjöldapósti til allra félagsmanna.
Ný félagsskírteini verð send út á næstunni sem gilda 2012-2014 og eru félagsmenn beðnir um að vera með þau á öllum viðburðum og námskeiðum á vegum félagsins. Þessi félagsskírteini eru ekki eingöngu til að sýna aðild í félaginu heldur líka stór þáttur í að efla félagslegu tengslin okkar. Við bendum á að skírteinin eru eingöngu send til þeirra sem hafa gert upp félagsgjöld sín fyrir þetta ár.
Einnig er fyrirhuguð lengri námskeið í vetur í samstarfi við HR og verða þau auglýst síðar.
Aðalfundur félagsins verður haldinn 9. nóvember 2012, og árshátíð það sama kvöld. Mjög vel tókst til á síðasta ári og skemmtu sér allir konunglega og voru óskir um að gera þetta að árlegum viðburði. Á aðalfundi verður kosið í stjórn og nefndir og eru sæti laus í skemmtileg störf. Í byrjun október munum við senda út auglýsingar varðandi sætin sem þarf að fylla og vonumst við eftir að félagsmenn sýni því áhuga því alltaf er þörf á nýju fólki með nýja stefnu og hugmyndir. Við erum öflugt félag með marga liðsmenn sem geta skorað í mark.
Félagið eykur þjónustu við félagsmenn í vetur og verður hægt að hafa samband við starfsmann okkar á þriðjudögum og fimmtudögum á milli kl. 09:00-12:00 í síma 691 9515 og mun tölvupósti sem berst til [email protected] einnig vera svarað á þeim dögum.
Við bendum á nýjan flipa á heimasíðu okkar Réttindapróf, sem hefur að geyma gagnlegar upplýsingar varðandi ráðuneytið, prófanefnd, viðurkenninguna og námið.
Við viljum einnig koma á framfæri afsökunarbeiðni vegna bilunar á heimasíðu okkar. Borið hefur á að félagsmenn hafa ekki geta skráð sig á auglýst námskeið á síðunni okkar.
Við bendum á að hægt er að skrá sig á netfangið [email protected] og [email protected]
Kveðja
Júlía Sigurbergsdóttir
Formaður FVB