Gönguferð á Helgafelli

{joomplu:76}Miðvikudaginn 2. júní sl. var farin frábær gönguferð á Helgafelli í guðdómlegu veðri og var 16 manna hópurinn alsæll með túrinn. Næst verður gengið í kringum Vífilstaðavatn miðvikudaginn 7. júlí og verður lagt af stað frá bílastæðinu kl. 18:00. Skemmtinefndin

Frumvarp til laga um breyting á lögum um tekjuskatt (skattaleg meðferð á eftirgjöf skulda) .

Meðfylgjandi er frumvarp til laga um breyting á tekjuskattslögum. Lagt er  ákvæði til bráðabirgða um skattalega meðferð á eftirgjöf skulda hjá móttakanda eftirgjafarinnar.Skal það ná til áranna 2009, 2010 og 2011. Með vissum skilyrðum geta skv. frumvarpinu  rekstraraðilar talið til tekna  50% af eftirgjöf skulda vegna rekstrar- og greiðsluerfiðleika upp að samtals 50 m.kr., og […]

Reglur um þverfaglegt meistaranám við Háskóla Íslands í skattarétti og reikningsskilum.

Nr. 484 18. maí 2010 REGLUR um þverfaglegt meistaranám við Háskóla Íslands í skattarétti og reikningsskilum. 1. gr. Gildissvið. Reglur þessar gilda um meistaranám í skattarétti og reikningsskilum við Háskóla Íslands. Námið er þverfaglegt og skipulagt sameiginlega af viðskiptafræðideild annars vegar og lagadeild hins vegar. Reglur um meistaranámið eru sérreglur gagnvart ákvæðum 69. gr. reglna […]

Næsti gjalddagi virðisaukaskatts er 7. júní

Næsti gjalddagi virðisaukaskatts, fyrir tímabilið mars-apríl, er mánudagurinn 7. júní nk.    HVENÆR ÞARF AÐ VERA BÚIÐ AÐ GREIÐA Athugið að ef greitt er í vefbanka þarf að ganga frá greiðslu fyrir kl. 21:00 á gjalddaga til þess að hún bókist samdægurs. Krafan er sýnileg í vefbanka til kl: 21 á gjalddaga.    KRAFA FINNST EKKI […]

Áminning um framtalsskil einstaklinga 2010. Send út í dag

Eftirfarandi er til fróðleiks og upplýsinga. „Ágæti viðtakandi. xxxxxxx kt xxxxx Vakin er athygli á því að nú eru allir framtalsfrestir einstaklinga liðnir vegna skila á skattframtali 2010 og skattframtal frá þér hefur ekki borist. Ef framtalið er í vinnslu hjá endurskoðanda eða bókara þarftu ekki að bregðast við þessum pósti. Tölvupóstfang þitt hefur verið gefið […]

Vel heppnuð gönguferð!

Gönguferðin á Úlfarsfellið í gær heppnaðist afar vel og var þátttaka mjög góð, þrátt fyrir þoku og lítið útsýni. Mikill áhugi er meðal hópsins og hefur verið ákveðið að framvegis verði gönguferð á vegum skemmtinefndar FVB fyrsta miðvikudag í mánuði. Næst verður haldið á Helgafellið við Kaldársel fyrir ofan Hafnarfjörð, 2. júní n.k. og lagt […]