Punkturinn, 4. tbl. 2009 og skattatilkynning

Góðan dag, Á meðfylgjandi slóð og er að finna fjórða tölublað Punktsins, fréttablaðs skatta- og lögfræðisviðs Deloitte hf. http://www.deloitte.com/dtt/cda/doc/content/Punkturinn%20_4%20tbl%2009.pdf Hér er einnig að finna tilkynningu um nýlegt frumvarp fjármálaráðherra á Alþingi um breytingar á ýmsum ákvæðum skattalaga í viðhengi. Sérstök athygli er vakin á tillögum um hækkun fjármagnstekjuskatts í 15% sem samkvæmt frumvarpinu tekur gildi […]

AUGLÝSING um breytingu á grunnfjárhæðum erfðafjárskatts (skv. eldri lögum ) frá og með 1.des sl.

AUGLÝSING um breytingu á grunnfjárhæðum erfðafjárskatts (skv. eldri lögum ) frá og með 1.des sl. Andlát 31.mars 2004 og fyrr. Þessi reglugerð er sett vegna þess að ákvæði laga nr. 83/1984, um erfðafjárskatt, með síðari breytingum, skulu gilda um skipti á dánarbúum þeirra sem önduðust fyrir 1. apríl 2004. Núgilgdandi lög eru nr.14 frá 2004. Sjá […]

Úrskurður yfirskattanefndar,. Söluréttarsamningur vegna hlutabréfa.

Úrskurður yfirskattanefndar,. Söluréttarsamningur vegna hlutabréfa. Hækkun við innlausn talin launagreiðslur. Meðfylgjandi er reifun á nýlegum yfirskattanefndarúrskurði sem varðar starfskjör . Málið er nr 117 frá 27.05. sl.  Kærandi, sem var forstjóri X hf., keypti hlutabréf í félaginu á genginu 3,15 á árinu 2003. Fóru kaup hlutabréfanna fram á grundvelli söluréttarsamnings milli kæranda og X hf. […]

Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti

Fréttatilkynning nr. 32/2009 Samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er 5. júní 2009 gjalddagi virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabilsins mars og apríl 2009 og 5. ágúst gjalddagi vegna uppgjörstímabilsins maí og júní 2009. Í 1. mgr. 27. gr. laganna kemur fram að sé virðisaukaskattur ekki greiddur á tilskildum tíma skuli aðili sæta álagi […]

Dómur. Hérd. Aðferð við tvísköttun tekna.

Í meðfylgjandi dómsmáli var deilt um viðhorf tvisköttunarsamninga til skattlagningar hér á landi.  Gjaldandi krafðist þess að álagning opinberra gjalda skattstjórans í Reykjavík á hann  gjaldárin 1999 til og með 2008  yrði ómerkt. Hann hafði  verið heimilisfastur hér á landi frá árinu 1995, en aflað tekna bæði hérlendis og erlendis, í Svíþjóð og í Færeyjum. […]