Útbúin hafa verið ný eyðublöð vegna umsókna um vottorð. Þau eru á íslensku og ensku og númer þeirra er rsk. 14.10 (íslenska) og 14.11 (enska). Hægt er að finna þau á rsk.is annars vegar undir "Eyðublöð" og hins vegar "International" Þá eru þau á pappír í afgreiðslunni.
Námskeið á næstunni
Hér eru hlekkir á fyrirtæki og skóla sem bjóða upp á ýmis námskeið sem félagsmenn geta fengið endurmenntunarpunkta fyrir: Höfuðborgarsvæðið: Opni háskólinn (Háskólinn í Reykjavík) Endurmenntun Háskóla Íslands Tölvu- og verkfræðiþjónustan Stjórnendaskóli Capacent Landsbyggðin: Símenntun Háskólans á Akureyri Símenntun Viðskiptaháskólans á Bifröst Fjarnám: Fjarkennsla.com Heimanám.is Tölvunám.is
Munið Félagsfundinn í dag kl. 17.30 !!!
Sjá neðar – auglýsingu!
Reikningsskiladagur FLE 22. sept.
Reikningsskiladagur FLE (Félag löggiltra endurskoðenda) verður haldinn föstudaginn 22. september nk. á Grand Hótel Reykjavík. Ráðstefnan er "opin" þeim sem áhuga hafa á að sækja hana. Skráning er hafin hér á skrifstofu FLE tölvupóstfang [email protected] sími 568 8118 eða fax 568 8139 Tilkynna þarf: Nafn þátttakanda, síma, starfsstofu, heimilisfang og kennitölu greiðanda. Dagskrá
Félagsfundur 15. sept. n.k.
Föstudaginn 15. september nk. kl.17:30 -19:30 munum við hittast og skemmta okkur saman, minnug þess skv. 4 lið um tilgang félagsins “að vera vettvangur fyrir gagnkvæm kynni félagsmanna”. Fyrirtækið Maritech mun bjóða upp á léttar veitingar (áfengar og óáfengar) og puttamat, en ennfremur munu þeir verða með fyrirtækjakynningu. Einnig mun Helga Jónsdóttir hjá IMG/Capacent koma […]
RU – Símennt – 72 nýnemar að hefja réttindanám
RU-Símennt – 72 nýnemar að hefja réttindanámið í dag, og óskum við þeim góðs gengis á næstu vikum og mánuðum, en munu þeir þá væntalega fylla hóp okkar viðurkenndra bókara við útskrift í janúarmánuði 2007.
Impra- Brautargengi – námskeið að hefjast !
Ný námskeið að hefjast – í Reykjavík, Akureyri, Vík í Mýrdal og Hólmavík. Brautargengi er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin atvinnurekstur. Tengjast: impra.is
Eyðublöð
Endurmenntunarpunktaeyðublað
Endurmenntunarreglur
Úr samþykktum félagsins: Endurmenntun félagsmanna 21. gr Félagsmaður skal á hverju 3ja ára tímabili sækja endumenntun sem félagið viðurkennir, sem svarar til 45 eininga, sbr. 2. mgr. Heimilt er að víkja frá þessu ef sérstaklega stendur á s.s veikindi. Einingar skulu reiknaðar sem hér segir: Fundir og námskeið á vegum Félags viðurkenndra bókara eða […]
Endurmenntun
Fræðslunefnd sér um að halda endurmenntunarviðburði innan félagsins og er kosið í nefndina á hverju ári (sjá lista yfir nefndarmeðlimi). Netfang nefndarinnar er [email protected]. Endurmenntunareiningar fást fyrir að sitja námskeið eða ráðstefnur á vegum félagsins. Misjafnt er hversu margar einingar er hægt að fá og fer það eftir lengd námskeiðs/ráðstefnu.Félagsmenn geta líka fengið endurmenntunareiningar fyrir […]