Aðalfundur 10.nóvember – undirbúningur

Viljum við benda félagsmönnum okkar að íhuga hvort þeir telji ástæðu til breytinga á samþykktum félagsins, en eins og segir í 26.gr samþykkta félagsins þarf að geta þeirra í fundarboði sem þarf að senda út skv. 15.gr. með 2 vikna fyrirvara. Einnig viljum við hvetja félagsmenn til að íhuga framboð til setu í stjórn eða […]

Skoðanakönnun – v. fyrirlestra 10. nóvember !

Beiðni hefur borist frá endurmenntunarnefndinni um að setja upp nýja spurningu á heimsíðunni okkar, og hefur það verið gert: sjá ! Hvaða bókhaldskerfi vinnur þú með?.  Svörin á að nota til undirbúnings fyrir efni um fyrirlestra sama dag og aðalfundinn verður.  Hugmyndir nefndarmanna eru spennandi og bíðum við hin spennt eftir niðurstöðu, en til þess […]

Frétt – v. fundarins s.l. föstudag !

Fundurinn sl. föstudag gekk mjög vel og mættu tæplega 60 félagsmenn. Gestir voru  Jón Heiðar Pálsson frá TMS Maritec sem kynnti fyrirtækið og nýjungar í bókhaldshugbúnaði frá þeim. Meðal annars betri tengingar Microsoft Dynamics Nav við Office hugbúnaðinn en áður hefur verið, en það eykur upplýsingaflæði og skapar þar með betra vinnuumhverfi og streymi upplýsinga […]

RSK – erindi v. vottorð

Útbúin hafa verið ný eyðublöð vegna umsókna um vottorð. Þau eru á íslensku og ensku og númer þeirra er rsk. 14.10 (íslenska) og 14.11 (enska). Hægt er að finna þau á rsk.is annars vegar undir "Eyðublöð" og hins vegar "International" Þá eru þau á pappír í afgreiðslunni.  

Námskeið á næstunni

Hér eru hlekkir á fyrirtæki og skóla sem bjóða upp á ýmis námskeið sem félagsmenn geta fengið endurmenntunarpunkta fyrir: Höfuðborgarsvæðið: Opni háskólinn (Háskólinn í Reykjavík) Endurmenntun Háskóla Íslands Tölvu- og verkfræðiþjónustan Stjórnendaskóli Capacent Landsbyggðin: Símenntun Háskólans á Akureyri Símenntun Viðskiptaháskólans á Bifröst Fjarnám: Fjarkennsla.com Heimanám.is Tölvunám.is