Reikningsskiladagur FLE 22. sept.

Reikningsskiladagur FLE (Félag löggiltra endurskoðenda) verður haldinn föstudaginn 22. september nk. á Grand Hótel Reykjavík. Ráðstefnan er "opin" þeim sem áhuga hafa á að sækja hana. Skráning er hafin hér á skrifstofu FLE tölvupóstfang [email protected] sími 568 8118 eða fax 568 8139 Tilkynna þarf: Nafn þátttakanda, síma, starfsstofu, heimilisfang og kennitölu greiðanda. Dagskrá  

Félagsfundur 15. sept. n.k.

Föstudaginn 15. september nk. kl.17:30 -19:30 munum við hittast og skemmta okkur saman,  minnug þess skv. 4 lið um tilgang félagsins “að vera vettvangur fyrir gagnkvæm kynni félagsmanna”. Fyrirtækið Maritech mun bjóða upp á léttar veitingar (áfengar og óáfengar) og puttamat, en ennfremur munu þeir verða með fyrirtækjakynningu. Einnig mun Helga Jónsdóttir hjá IMG/Capacent koma […]

Endurmenntunarreglur

Úr samþykktum félagsins:   Endurmenntun félagsmanna 21. gr Félagsmaður skal á hverju 3ja ára tímabili sækja endumenntun sem félagið viðurkennir, sem svarar til 45 eininga, sbr. 2. mgr. Heimilt er að víkja frá þessu ef sérstaklega stendur á s.s veikindi. Einingar skulu reiknaðar sem hér segir: Fundir og námskeið á vegum Félags viðurkenndra bókara eða […]

Endurmenntun

Fræðslunefnd sér um að halda endurmenntunarviðburði innan félagsins og er kosið í nefndina á hverju ári (sjá lista yfir nefndarmeðlimi). Netfang nefndarinnar er [email protected]. Endurmenntunareiningar fást fyrir að sitja námskeið eða ráðstefnur á vegum félagsins. Misjafnt er hversu margar einingar er hægt að fá og fer það eftir lengd námskeiðs/ráðstefnu.Félagsmenn geta líka fengið endurmenntunareiningar fyrir […]