Meðfylgjandi er frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald,með síðari breytingum.
Frumvarpið er um fjármögnun Starfsendurhæfingarsjóðs.
Með frumvarpinu er að því er tryggingagjaldið varðar einungis breytt ráðstöfun tryggingagjalds en ekki innheimtuhlutfalli þess.
Frumvarpið gerir síðan ráð fyrir skyldu launagreiðenda til greiðslu 0,13% iðgjalds til Starfsendurhæfingarsjóðs, samhliða skyldu launþega til að tryggja sér rétt til starfsendurhæfingar frá 16 ára til 70 ára aldurs. Einnig að lögfest verði framlag til Starfsendurhæfingarsjóðs frá lífeyrissjóðunum .
Er lagt til að öllum launamönnum og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi verði skylt að tryggja sér rétt til starfsendurhæfingar með greiðslu 0,13% iðgjalds í Starfsendurhæfingarsjóð, sem greitt verði af launagreiðendum samhliða lífeyrisiðgjöldum til viðkomandi lífeyrissjóða.
Sá frumvarp.