Meðfylgjandi er frumvarp til laga um nýja ríkisstofnun, Íslandsstofu.
Markmið frumvarpsins er að setja í lög ákvæði sem ætlað er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum, og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins.
Gert er ráð fyrir að Íslandsstofa starfi á grunni Útflutningsráðs Íslands og fleiri stofnana.. Við gildistöku yfirtekur Íslandsstofa skv. frumvarpinu öll réttindi og skyldur Útflutningsráðs Íslands, eignir þess og skuldir. Áætlað er að fjárheimildir færist frá Útflutningsráði og einnig mun Íslandsstofa fá til ráðstöfunar fyrir sín verkefni hluta af fjárheimildum til ferðamála er tilheyra iðnaðarráðuneytinu.
Tekjur Íslandsstofu eru skv. frumvarpinu þessar (5.gr.):
" 1. Markaðsgjald, 0,05% sem lagt er á gjaldstofn til greiðslu tryggingagjalds eins og hann er skilgreindur í III. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald. Um álagningu og innheimtu markaðsgjalds fer eftir ákvæðum þeirra laga. Markaðsgjald má draga frá tekjum þess rekstrarárs þegar stofn þess myndaðist.
2. Framlög á fjárlögum.
3. Þóknun fyrir veitta þjónustu.
4. Þjónustusamningar við stofnanir og samtök.
5. Sérstök framlög og aðrar tekjur. "…………………….
Í ákvæði til bráðabirgða er að finna að ræða áframhald á núgildandi sólarlagsákvæði um markaðsgjald, sbr lög um útflutningsaðstoð nr. 160/2002. Gjaldið fellur því úr gildi 1. janúar 2013 verði annað ekki ákveðið með lögum fellur markaðsgjald , þó þannig að álagning gjaldsins fari fram árið 2013 vegna gjaldstofns ársins 2012.
Gert er ráð fyrir að lögin öðlist þegar gildi við birtingu þeirra og um leið falla úr gildi lög um útflutningsaðstoð, nr. 160/2002, með síðari breytingum.