Félag viðurkenndra bókara óskar eftir starfsmanni til starfa fyrir félagið.
Viðkomandi þarf að geta unnið í eigin aðstöðu og er starfssviðið margþætt og er unnið í samvinnu við stjórn og aðrar nefndir.
Starfssvið:
- Símsvörun 1-2 morgna í viku
- Svara netfangi félagsins [email protected]
- Senda út reikninga vegna námskeiða og félagsgjalda ásamt umsjón með innheimtu.
- Bókhald félagsins, kostnaðarreikningar, afstemmingar ofl.
- Ársreikningur og sundurliðanir
- Skráning endurmenntunareininga
- Heimasíða, setja inn auglýsingar, stofna viðburði og fylgjast með skráningum
- Markaðsmál, í samvinnu við stjórn hverju sinni
- Aðstoð við að skipuleggja viðburði
Ferilskrár sendast á [email protected]
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2012