Dagsetning: 2017-10-20
Tími frá: 9:00 – 12:00
Staðsetning: Grand Hótel – Gallerí, Sigtún 38
Verð: 5900
Hámarksfjöldi: Takmarkast af stærð salarins
Síðasti skráningardagur: 2017-10-18
Lýsing
ATH. námskeiðið verður sent út með skype eins og áður fyrir landsbyggðina
Námskeiðið verður haldið á Grand Hótel – Gallerí
föstudaginn 20. október 2017 kl. 9:00 – 12:00
Fyrirlesari:
Jón Hreinsson er fjármálastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Hann hefur unnið í 15 ár með fyrirtækjum við þróun viðskiptahugmynda og uppbyggingu rekstrar. Verið leiðbeinandi á námskeiðum bæði hjá Opna háskólanum, HR og Endurmenntun HÍ í gerð fjárhagsáætlana og kennt í rekstrar og fjármálanámi.
Námskeiðsefni:
Farið verður yfir meðal annars:
- Helstu grunnþættir við gerð fjárhagsáætlana, greiningu á tekjum og gjöldum.
- Skiptingu kostnaðar og áhrif hans á reksturinn.
- Einnig verður farið yfir nauðsyn þess að tengja saman fjárhagsáætlanir við markaðsmál og stefnumótun fyrirtækisins, ásamt gerð næmnigreininga.
Léttur morgunverður í kaffihlé kl. 10:10-10:30
Verð fyrir félagsmenn er kr. 5.900.- aðrir greiða kr. 8.900.-
Námskeiðið gefur 4,5 endurmenntunarpunkta.
Skráning er á vef FVB til og með 18. október.
Fjöldi þátttakenda takmarkast af stærð salarins.