Hér verður sýnt hvernig á að nálgast ný aðgangsorð:
- Til þess að fá ný aðgangsorð þarf að smella á Gleymd aðgangsorð undir innskráningarreitunum
- Þá er hægt að velja hvort það vantar notandanafn, lykilorð eða bæði með því að haka í viðeigandi reiti
- Ef það vantar notandanafn þarf að skrá netfang og smella á Fá nýtt notandanafn.
Athugið að þetta þarf að vera netfangið sem er skráð í persónuupplýsingarnar, öryggisins vegna.
Þá verður notandanafnið sent í tölvupósti. - Ef það vantar lykilorð þarf að skrá bæði notandanafn og netfang og smella á Fá nýtt lykilorð.
Nýtt lykilorð verður þá sent í tölvupósti. - Ef það vantar bæði notandanafn og lykilorð þarf að haka við bæði og sækja ný aðgangsorð í 2 skrefum.
Fyrst þarf að skrá netfang og biðja um notandanafn.
Þegar notandanafnið hefur skilað sér í tölvupósti, er það notað til að sækja nýtt lykilorð.
Allar fyrirspurnir sendist á vefstjori[@]fvb.is