Skemmtinefnd FVB hefur ákveðið að efna til gönguferða á fellin/fjöllin í nágrenni Reykjavíkur fyrstu miðvikudaga í hverjum mánuði og verður fyrsta ferðin 5. maí nk. Farið verður á Úlfarsfellið (byrjað létt) – mæting á bílastæðinu við Skyggnisbraut í Úlfarsfellshverfinu kl. 18,00 og er áætlað að gangan taki um klst. Öll fjölskyldan hjartanlega velkomin og hundar einnig, hugið að hentugum útivistarfatnaði og góðum gönguskóm. Skv. veðurspá er mjög gott gönguveður.
Við hvetjum fólk til að standa upp frá skattframtölum, bókhaldi og öðrum spennandi verkefnum, hitta vini og kunningja í FVB og njóta íslenska vorsins.