Search
Close this search box.

Ágr. um útvarpsgjald

Upp hafa komið þau tilvik að skattþegn með lægri launatekjur en  1.143. 362 hafi sætt álagningu útvarpsgjalds (og gjalds til framkv.sjóðs aldraða ), sbr. tilskrif hér að neðan.
Skýringin er sú að fjármagnstekjur, skipt milli hjóna ,  hafa líka áhrif á ákvörðun lágmarks..Í dæminu að neðan voru til dæmis fjármagntekjur 250.000 kr .
Einhverjir skattafjölvar og útreikniforrit voru ekki með réttar forsendur í þessu sambandi og tóku ekki fjármagnstekjurnar inn í dæmið. 

Álagningarforsendur útvarpsgjaldsins  eru öldungis þær hinar sömu og gjalds í framkv.sj aldraðra.
  Þær eru  þessar 2009:
 

"GJALD Í FRAMKVÆMDASJÓÐ ALDRAÐRA

Gjaldið nemur 7.534 kr.

Gjaldið er lagt á menn sem eru 16 – 69 ára í lok tekjuárs, þ.e. fæddir 1939 til 1992.

Undanþegnir gjaldinu eru menn með lægri tekjuviðmiðun en 1.143.362 kr.

Tekjuviðmiðun er tekjuskattsstofn að viðbættum fjármagnstekjuskattsstofni. Hjá hjónum og samsköttuðu fólki bætist þó einungis helmingur sameiginlegra fjármagnstekna við tekjuviðmiðun hjá hvoru fyrir sig.

Þeir elli- og örorkulífeyrisþegar, undir 70 ára aldri, sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum eru undanþegnir gjaldinu. "

 Lagatextinn er þessi : 

Úr lögum
nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf.*1)

 

*1)Sbr. lög nr. 174/2008.

 

11. gr.
[Tekjur.]1)

 

 

 

 

1.        Undanþegnir gjaldinu eru þeir einstaklingar sem ekki skulu sæta álagningu sérstaks gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra eða skulu fá það gjald fellt niður skv. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra.

 

Úr lögum
nr. 125/1999, um málefni aldraðra.*1)

 

*1)Sbr. lög nr. 172/2000, 124/2001, 150/2002, 120/2003, 123/2004, 129/2004, 122/2005, 147/2006, 32/2007, 140/2007 og 36/2009.

 

2) Undanþegin gjaldinu eru börn innan 16 ára aldurs og þeir sem eru 70 ára og eldri í lok tekjuárs. Einnig eru undanþegnir gjaldinu einstaklingar sem hafa tekjuskattsstofn skv. 1. og 3. tölul. 61. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, samtals lægri en [1.143.362 kr. á því ári sem næst er á undan álagningarárinu.]3) Þegar um hjón eða samskattað fólk er að ræða skal þó skipta sameiginlegum fjármagnstekjum skv. 3. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2003 jafnt á milli þeirra þegar tekjuviðmiðun þessi er fundin.

 

Sæll Steinþór.
 
Sent í framhaldi af símtali
 
K hringdi í mig vegna álagningar dóttur sinnar A.
Samkvæmt mínum útreikningum átti hún hvorki að greiða útvarpsgjald né í gjald í framkvæmdasjóð aldraða.
 
Hins vegar segir K að A sé rukkuð um framangreind gjöld.
Heildarlaun Anítu voru kr. 935.586 og tekjuskattsstofninn kr. 910.969.
 
Svo virðist sem einhver vitleysa sé í kerfinu. Þú lætur mig væntanlega heyra niðurstöðuna.
 
Kv.
 
H 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur