Námskeið Fræðslunefndar í mars 2023
Bæði á Zoom og í sal
Greining ársreikninga – Lesið milli línanna í reikningnum
Kennari: Bjarni Frímann Karlsson. Námskeiðið er 2 skipti og verður haldið mánudag og miðvikudag 20. og 22. mars nk kl. 9.00 til 11.30 í Promennt, Skeifunni 11b 2 hæð Eða á ZOOM fyrir þá sem ekki komast á staðinn.
Um námskeiðið:
Farið verður í undirstöðuatriði við greiningu ársreikninga, einkum hinar klassísku þrjár aðferðir:
Lárétt greining
Tímaraðir, verðbólgupælingar.
Lóðrétt greining
Innbyrðis hlutföll í köflum ársreiknings. Samanburður milli fyrirtækja og greina.
Kennitölugreining
Fjárnýting (skilvirkni), greiðsluhæfi og skuldsetning, arðsemi, markaðsverð og -virði
Unnið verður sérstaklega með einn tiltekinn ársreikning (sem verður útprentaður) og litið til einhverra fleiri eftir því sem ástæða er til og tíminn leyfir. Þátttakendur geta haft sína eigin tölvu meðferðis ef þeir kjósa svo, en blöð, skriffæri og vasareiknir dugar alveg.
Aðeins um kennaran:
Bjarni Frímann Karlsson
f.v. lektor í reikningshaldi og endurskoðun við Viðskiptafræðideild HÍ.
Kenndi þar frá 1998 til 2019, fyrst sem stundakennari en fastráðinn frá 2005.
Kenndi allan þann tíma samhliða við Endurmenntun Háskóla Íslands ýmis rekstrartengd námskeið.
Forstöðumaður hjá Íbúðalánasjóði 2001-2005.
Forstöðumaður hjá Borgarendurskoðun 1992-2001.
Þar áður grunnskólakennari og togarasjómaður í 20 ár.
Menntun:
BA í íslensku og sögu
Cand.oecon. í viðskiptafræði
Meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá Syddansk Universitet.
Verð fyrir félagsmenn aðeins kr. 5.900. – Fyrir fólk utan félags kr. 7.900
ATH. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.
Námskeiðið gefur 7,5 endurmenntunarpunkta
Skráning er á vef FVB til og með laugardags 18. mars nk.
Fjöldi þátttakenda í sal er 25 manns.
Fræðslunefndin