Kæru félagsmenn!
Nú er komið að því – haustferðin frá því í fyrra endurtekin !!!! – og mun félagið standa fyrir hópeflingu viðurkenndra bókara með ferðalagi föstudaginn 12. september n.k.
Við í stjórninni erum búnar að halda fyrsta fund eftir gott sumarfrí og tilbúnar í vetrarstarfið og spenntar að fá að hitta félaganna og heyra hvað á daga þeirra hefur drifið síðan í vor.
Skv. 4.gr. í samþykktum félagsins er tilgangur félagsins m.a. „…að vera vettvangur fyrir gagnkvæm kynni félagsmanna…“. Sá vettvangur verður að þessu sinni ferðalag með rútu frá bílaplani VR hússins. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 17.15 og keyrt verður upp í Heiðmörk í Trjálund þar sem við munum fara í smá gönguferð. Í boði verður skemmtilegur félagsskapur, gítarspil og söngbækur, léttir drykkir og grillaðar pylsur. Munum við í stjórninni leitast við að hrista hópinn saman og um kl. 20.00 mun rútan sækja okkur og keyra til baka á bilastæðið við VR húsið og þeim sem vilja verður ekið á vel valið öldurhús þar sem hægt verður að skemmta sér áfram.
Það er ósk okkar í stjórninni að tilbreyting þessi í annars góðu félagsstarfi muni falla félagsmönnum vel í geð og vonumst við til að sem flestir félagsmenn sjái sér fært að taka þátt í þessari 5 ára afmælisveislu félagsins.
Áhugasamir vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að skrá ykkur á „viðburð“ á heimasíðu félagsins fyrir þriðjudaginn 09. september. Þar sem ýmislegt getur nú komið upp á í lífi félagsmanna munum við í stjórninni taka við skilaboðum um forföll annað hvort í tölvupósti eða símaskilaboðum til miðnættis fimmtudaginn 11. september.
Vinsamlegast takið með ykkur fatnað við hæfi, útilegustól (ef hann er til) og góða skapið!
Sjáumst! —- vonumst til að söngbækur og gítar verði í för eins og í fyrra …….
Stjórnin
Inga Jóna s. 691 0127, Ásta Lín, Eva María , Júlía og Bryndís