Hnappurinn – rafræn skil á ársreikningi25.8.2017
Nú geta þau félög sem falla undir skilgreiningu á örfélagi útbúið ársreikning út frá innsendu skattframtali og sent til ársreikningaskrár ríkisskattstjóra.
Ekki þarf aðkomu endurskoðanda eða skoðunarmanns við gerð slíks ársreiknings. Þegar búið er að skila skattframtali er farið í skil til ársreikningaskrár inni á www.skattur.is.
Örfélag er félag sem við uppgjörsdag fer ekki fram út tveimur af þremur stærðarmörkum sem eru:
1. heildareignir: 20 millj. kr.,
2. hrein velta: 40 millj. kr. og
3. meðalfjöldi ársverka á reikningsári: 3 starfsmenn.
Flokkun örfélags breytist ekki nema félag fari yfir viðmiðunarmörk viðkomandi árs og síðastliðins reikningsárs.