Skattskil í HR Opni háskólinn í HR í samstarfi við Félag viðurkenndra bókara (FVB) kynnir stutt og hagnýt námskeið sérsniðin að þörfum þeirra sem starfa við bókhald. Endurmenntunareiningar FVB fást fyrir að sitja námskeiðin. Félagsmenn FVB fá 10% afslátt á námskeiðin. Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóstá verkefnastjóra námskeiðsins, [email protected], áður en námskeiðið hefst til að fá þessi sérkjör. Leiðbeinandi námskeiðanna er Lúðvík Þráinsson, löggiltur endurskoðandi Deloitte. Skráning í fullum gangi, tryggðu þér sæti!
Excel í starfi bókarans Farið verður yfir það hvernig nota má töfluforritið Excel til að auka afköst og skilvirkni í störfum bókara, m.a. við yfirferð vinnuskjala, vinnslu gagna og útreikninga. Meðal efnistaka er uppsetning ársreiknings, gerð fyrningatöflu, gerð lánatöflu og VSK afstemming. Tími: Kennsla fer fram á mánudögum og miðvikudögum dagana 15., 17., 22. og 24. apríl frá kl.16:00 – 20:00 alla dagana. Verð: 62.000 kr. Innifalið í verði eru námskeiðsgögn og léttar veitingar. Leiðbeinandi: Páll Daði Ásgeirsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte. Endurmenntunareiningar FVB: 30 ein. NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING TEKJUSKATTSSKULDBINDING, SJÓÐSTREYMI OG SKATTAR Námskeið í reikningshaldi fyrir starfandi bókara. Á námskeiðinu verður farið í upprifjun á sjóðstreymi og skattaútreikninga fyrirtækja auk þess sem fjallað verður um nýjungar í skattamálum eftir því sem við á. Þá verður farið ítarlega í útreikninga tekjuskattsskuldbindingar. Tími: Kennsla fer fram miðvikudaginn 15. maí og fimmtudaginn 16. maí frá kl.13 – 16. Verð: 39.000 kr. Leiðbeinandi: Lúðvík Þráinsson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte. Endurmenntunareiningar FVB: 15 ein.
Hafðu samband Frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri: Erna Tönsberg / netfang: [email protected] / sími: 599 6387 |
– |