Kæru félagsmenn,
launakönnun FVB 2014 stendur nú yfir. Allir félagsmenn hafa fengið sendan tölvupóst með slóð á könnunina og er mjög mikilvægt að sem flestir taki þátt.
Ef þið hafið ekki fengið tölvupóstinn þá gæti verið ráð að kíkja í ruslpóstsíuna og athuga hvort pósturinn hafi lent þar. Ef þið notið Gmail, þá getur verið sniðugt að kíkja í Updates-flipann.
Eins getur verið að netfangið sé rangt skráð í félagaskránni og eru allir félagsmenn hvattir til að ganga úr skugga um það.
Netfang sendanda birtist sem “[email protected] via surveymonkey.com” svo hægt er að leita eftir því.
Ef þið hafið einhverjar spurningar um könnunina eða finnið ekki tölvupóstinn, sendið þá póst á vefstjori(hjá)fvb.is
með kveðju,
Vefstjóri FVB