Ríkisskattstjóri minnir á að frestur til að skila launamiðum á rafrænu formi er til 10. febrúar.
Frestur til að skila á pappír er útrunninn, hann var til 30. janúar.
Þeir sem eiga eftir að skila launamiðum vegna launagreiðslna 2009 eru hvattir til að skila rafrænt.
Flest launaforrit bjóða upp á að sent sé beint úr launakerfi. Einnig er hægt að skrá miðana á www.skattur.is (vefskil > gagnaskil), eða lesa inn gagnaskrá (txt) úr launakerfum.
Mikilvægt er að launamiðar berist á réttum tíma vegna áritunar launaupplýsinga á skattframtöl einstaklinga.
Sama gildir um önnur gögn, þ.e. hlutafjármiða, verktakamiða og bifreiðahlunnindamiða.
This is an automatic reminder that the due date for statement of earnings for the year 2009 was on January 30th 2010, if delivered on paper.
If delivered electronically then the due date is February 10th 2010.
Ríkisskattstjóri.