Samkvæmt meðfylgjandi lögum eru gerðar nokkrar breytingar á lögum um tekjuskatt . Lögin hafa enn ekki verið birt og eru án númers en voru samþykkt 15.apríl 2009.
1. Sett er ex tuto ákvæði í 28.grein laganna þess efnis að eftirgjöf skulda samkvæmt lögum um nauðasamninga og varða greiðsluaðlögun teljist ekki til skattskyldra tekna.
2. Hert er á reglum er varða skil banka og fjármálafyrirtækja á upplýsingum um afleiðuviðskipti, eignastýringu, milligöngustarfsemi og fleira. Verður þessum aðilum gert skylt að veita upplýsingar um útlán í árslok og greidda vexti á árinu. Er þetta til viðbótar þeirri skyldu að veita upplýsingar um inneignir og innstæður í árslok.
3. Íslensk móðurfélög verða ábyrg fyrir að veita upplýsingar til íslenskra skattyfirvalda um tekjur viðskiptavina erlendra dótturfélaga séu umræddir viðskiptavinir skattskyldir hér á landi. Þessu ákvæði er ætlað að koma í veg fyrir að hægt verði að fela eignarhald í félögum með skráningu í lágskattaríkjum og að hægt verði að víkjast frá íslenskri skattskyldu.
4. Settar eru reglur um upplýsingagjöf er varðað gæti skattlagningu aðila sem eiga beina eða óbeina eignaraðild að félögum, sjóðum eða stofnunum í lágskattaríkjum.Átt er við aðila sem á beint eða óbeint minnst helming eignarhalds eða er með stjórnunarleg yfirráð í dótturfélagi eða útibú í þessum ríkjum . Lagt er til að fjármálafyrirtæki, endurskoðendur, lögmenn og aðrir aðilar sem að koma skuli halda sérstaka skrá yfir þá viðskiptavini sína sem fá skattaráðgjöf eða aðra þjónustu, sem snertir umráð eða beina eða óbeina eignaraðild að rekstri félaga, sjóða eða stofnana sem skráð eru erlendis eða eignir þar. Er þessum þjónustuaðilum skylt að láta skattyfirvöldum í té umrædda skrá er þau beiðast þess og ákvæði annarra laga um trúnaðar- og þagnarskyldu víkja.
5. Ákvæði sem sett var í tekjuskattslög um áramótin sl um söluhagnað af fasteignum sem ekki er heimilt að fyrna (50% reglan)tekur gildi við álagningu tekjuskatts á árinu 2010 en ekki 2009 eins og lögin gerðu ráð fyrir
Lögin koma þegar til framkvæmda
Þó skulu ákvæði 2.greinar er fela í sér reglur um skattskyldu innheimtu og skil á sköttum vegna starfsemi á lágskattasvæðum, koma til framkvæmda. við álagningu opinberra gjalda árið 2011 vegna tekna ársins 2010 og eigna í lok þess árs.