Lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar. Tekjutenging. Skuldajöfnun ofgreiddra fjármuna.
Meðfylgjandi lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar voru samþykkt á Alþingi í gær en hafa enn ekki verið birt eða fengið laganúmer.
Lögin kveða á um að líffæragjafar sem eru launamenn eða sjálfstætt starfandi á innlendum vinnumarkaði og verða óvinnufærir vegna líffæragjafar til líffæraþega geti átt rétt á tekjutengdum greiðslum í allt að þrjá mánuði með vissum skilyrðum.
Ýmis skilyrðanna varða skattstofna og skattalega stöðu viðkomandi.
Í lögunum er meðal annars ákvæði um að ef líffæragjafi hafi fengið hærri greiðslur en honum bar , sé heimilt að skuldajafna ofgreiddum greiðslum á móti inneign líffæragjafans vegna ofgreiddra skatta, barnabóta og vaxtabóta og skuli fjármálaráðherra skal setja í reglugerð nánari reglur um skuldajöfnun og forgangsröð og fari að öðru leyti um innheimtu slíks fjár eftir lögum um tekjuskatt. (Félags- og tryggingamálaráðherra getur þó falið sérstökum innheimtuaðila að annast innheimtu ).
Lögin öðlast gildi 1. janúar 2010 og eiga við um líffæragjafa sem verða óvinnufærir vegna líffæragjafar eftir gildistöku laganna.