Meðfylgjandi lög nr 70/2009 sem birt voru 29.06 sl. varða breytingar á ýmsum lögum til að mæta miklu tekjufalli og útgjaldaauka sem ríkissjóður hefur orðið fyrir vegna áfalla í efnahag. Einnig fylgir hér með frumvarp að lögunum í upphaflegri mynd þess.
Sjá frumvarp
Sjá lög
Rétt er að nefna nokkur atriði er varða slkattframkvæmd, Upptalningin er ekki tæmandi.:
1.Tryggingagjald hækkar úr 5,34% í 7% frá og með 1.júlí sl.
2.. Breyting verður á fyrirkomulagi virðisaukaskatts . Tilteknar neysluvörur hækka í þrepi og bera 24,5% virðisaukaskatt. Um er að ræða sömu vöruflokka og voru í hinu efra þrepi fyrir 1. mars 2007 að viðbættum sykurvörum af ýmsum toga.
3. Sérstakt 8% tekjuskattsálag leggst á tekjur umfram 700.000 kr.Frá og með 1. júlí til 31. desember 2009 skal launagreiðandi reikna og skila í ríkissjóð til viðbótar hefðbundinni staðgreiðslu, sem nú er 37,2% að meðtöldu útsvari, sérstökum 8% tekjuskatti af launum hvers einstaklings umfram 700.000 kr. á mánuði. Einstaklingur með 1 millj. kr. í laun að meðtöldum skattskyldum hlunnindum mun þannig greiða 24 þús. kr. meira í staðgreiðsluskatt á mánuði. Endanlegt uppgjör þessa sérstaka 8% tekjuskatts fer síðan fram við álagningu opinberra gjalda 1. ágúst 2010. Þetta nýmæli um álagningu sérstaks 8% tekjuskatts frá og með 1. júlí 2009 gerir kröfur til þess að tekjum sem tilheyra skattstofni í hinu almenna tekjuskattsþrepi verði haldið aðgreindum frá þeim tekjum sem sæta skulu sérstakri skattlagningu frá 1.júlí sl.. Þessi breyting er tímabundin og að í stað hennar kemur svo almennari breyting á tekjusköttum einstaklinga, sem tekur gildi um næstu áramót.
4. Hækkun verður á fjármagnstekjuskatti úr 10% í 15% frá og með 1.júlí sl.
5. Skila skal afdreginni staðgreiðslu fjármagnstekna ársfjórðungslega í stað almanaksársins
6. Gerð er sú breyting að aðilar sem ekki hafa heimilisfesti hér á landi greiði skatta vegna vaxta sem þeir fá greidda hér á landi.
7.. Auk þess er skattframkvæmd i styrkt með því að herða skatteftirlit, einkum með fjármálalegum umsvifum einstaklinga og fyrirtækja. Þannig verður ríkisskattstjóra heimilað að beita dagsektum í þágu skatteftirlits gagnvart aðilum sem telja sér stætt á því og/eða hafa hagsmuni af því að liggja á þeim gögnum sem þeim er skylt lögum samkvæmt að upplýsa um.
8. Lög um uppbót á eftirlaun falla brott. Þeim var ætlað að tryggja fólki 67 ára og eldra, sem átti takmörkuð eða engin réttindi í lífeyrissjóðum, tilteknar lágmarksgreiðslur sem reiknaðar voru út að lokinni álagningu opinberra gjalda.