Nr. 53 20. júní 2012
LÖG
um frávik frá lögum um skatta og gjöld vegna styrkja úr sjóði
er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki Evrópusambandsins.
FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Tilgangur.
Tilgangur laga þessara er að uppfylla þær skyldur sem íslenska ríkið tókst á hendur varðandi
undanþágur frá skattlagningu með rammasamningi milli ríkisstjórnar Íslands og framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins um reglur um samstarf er varðar fjárhagsaðstoð ESB
við Ísland innan ramma stuðningsaðgerða sjóðs er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki ESB.
2. gr.
Skilgreiningar.
Í lögum þessum merkir:
1. ESB-verktaki: Einstaklingur eða lögaðili sem veitir þjónustu og/eða afhendir vörur
og/eða vinnur verk með fjárstyrk samkvæmt ESB-samningi. Hugtakið ESB-verktaki
tekur einnig til staðbundinna ráðgjafa um langtímasérfræðiaðstoð og sérfræðinga sem
fylgja samningum um langtímasérfræðiaðstoð.
2. ESB-samningur: Sérhvert lagalega bindandi skjal um starfsemi sem er fjármögnuð eftir
reglum sjóðs er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki ESB og ESB undirritar eða íslenska
ríkið.
3. gr.
Innflutningur ESB-verktaka.
Við innflutning ESB-verktaka á vörum sem fjármagnaðar eru af ESB-samningi skal fella
niður aðflutningsgjöld.
Skilyrði undanþágunnar er að fyrir liggi skriflegur ESB-samningur þar sem fram kemur
skilgreining á verki og að innflutningurinn sé í beinum tengslum við verkið.
4. gr.
Virðisaukaskattur.
ESB-verktaki sem selur vörur eða þjónustu samkvæmt ESB-samningi skal vera undanþeginn
virðisaukaskatti. Undanþágan er háð því skilyrði að sala á vöru eða þjónustu sé í beinum
tengslum við starfsemi ESB-verktaka samkvæmt ESB-samningi.
Nr. 53 20. júní 2012
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er skráðum aðilum sem selja vörur eða þjónustu samkvæmt
ESB-samningi heimilt að telja til innskatts á hverju uppgjörstímabili virðisaukaskatt af aðkeyptum
rekstrarfjármunum, vörum, vinnu, þjónustu og öðrum aðföngum skv. 15. og 16. gr.
laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, enda varði kaupin verk sem unnið er samkvæmt samningnum.
Aðilar sem falla undir 1. mgr. og hafa ekki heimild til að telja til innskatts virðisaukaskatt
vegna kaupa á aðföngum, svo sem vegna þess að þeir eru ekki skráningarskyldir samkvæmt
lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, eiga rétt á endurgreiðslu þess virðisaukaskatts sem
þeir hafa greitt vegna kaupa á aðföngum sem varða eingöngu sölu á vörum og þjónustu samkvæmt
ESB-samningi. Beiðni um endurgreiðslu á virðisaukaskatti skal lögð fram skriflega
á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Beiðni skulu fylgja frumrit fullgildra sölureikninga
og vottað afrit af þeim ESB-samningi sem unnið er eftir í viðkomandi tilviki.
5. gr.
Tekjuskattur, útsvar og staðgreiðsla.
Einstaklingar sem ekki eru heimilisfastir hér á landi, eru ESB-verktakar og selja vörur eða
þjónustu samkvæmt ESB-samningi skulu undanþegnir skattskyldu skv. I. kafla laga nr.
90/2003, um tekjuskatt, og greiða því hvorki tekjuskatt né útsvar af tekjum sem samningurinn
skapar.
Lögaðilar sem ekki hafa fasta starfsstöð hér á landi, eru ESB-verktakar og selja vörur eða
þjónustu samkvæmt ESB-samningi skulu undanþegnir skattskyldu skv. I. kafla laga nr.
90/2003, um tekjuskatt, og greiða því ekki tekjuskatt af tekjum sem samningur þessi skapar.
Skilyrði undanþágu frá skattskyldu er að fyrir liggi skriflegur ESB-samningur þar sem
fram kemur skilgreining á verki og að vöru- eða þjónustusalan sé í beinum tengslum við þann
samning.
Ríkisskattstjóra er heimilt að taka til greina skriflega umsókn ESB-verktaka um endurgreiðslu,
að hluta eða öllu leyti, á staðgreiðslu hans samkvæmt lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu
opinberra gjalda, og lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur.
Á umsókn, sem sett skal fram á sérstöku eyðublaði og ríkisskattstjóri lætur gera, skal koma
fram rökstuðningur fyrir kröfum samkvæmt ákvæði þessu. Umsókn skal fylgja skriflegur
ESB-samningur þar sem fram kemur skilgreining á verki og upplýsingar um að tekjurnar séu
í beinum tengslum við ESB-samning aðila.
6. gr.
Búferlaflutningar til landsins.
Persónulegar eigur og heimilismunir sem einstaklingar, sem taka að sér verkefni sem
skilgreind eru í ESB-samningum, og nánustu fjölskyldumeðlimir þeirra, aðrir en þeir sem
búsettir eru á Íslandi, flytja inn til einkanota skulu undanþegnir tollum, virðisaukaskatti og
öðrum aðflutningsgjöldum. Undanþágan er háð því skilyrði að persónulegar eigur og heimilismunir
verði fluttir út aftur eða þeim fargað á Íslandi, í samræmi við gildandi reglur á
Íslandi, eftir að samningurinn er út runninn.
7. gr.
Stimpilgjöld.
Allir samningar sem fjármagnaðir eru af ESB-samningi skulu vera undanþegnir stimplun
og stimpilgjaldi. Nemi fjármögnunin einungis hluta samnings skal reikna stimpilgjald af
þeim hluta sem fjármagnaður er á annan hátt.
Nr. 53 20. júní 2012
Skilyrði undanþágunnar er að fyrir liggi skriflegur ESB-samningur þar sem fram kemur
skilgreining á verki og sá samningur sem fella á niður stimplun og stimpilgjöld af sé gerður
í beinum tengslum við ESB-samninginn.
8. gr.
Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð er kveður nánar á um framkvæmd laga þessara.
9. gr.
Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
__________
A-deild – Útgáfud.: 25. júní 2012