Meðfylgjandi lög sem samþykkt voru í sl viku eru samkvæmt frumvarpi af vorþinginu. Um er að ræða breytingu á bókhaldslögunum.
Með þessum lögum er fellt út það ákvæði gildandi laga að ráðherra skuli hlutast til um námskeiðahald fyrir þá sem vilja öðlast viðurkenningu sem bókarar.
Hlutverk ráðherra verður að sjá til þess að haldin verði próf fyrir þá sem óska eftir slíkri.
Þannig munu fleiri menntastofnanir en nú geta boðið upp á námskeið.
Einnig fá þeir sem hafa starfsreynslu og treysta sér til að fara beint í próf möguleika til að öðlast viðurkenningu sem bókarar án þess að sækja námskeið.
Lögin gera ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð þar sem kveðið verði nánar á um skilyrði próftöku, prófgreinar, framkvæmd prófa og lágmarksárangur til að standast próf.
Sjá nánar hér breytingu á lögum 145/1994 um bókhald og hér frumvarpið